Þá er lítið eftir að gera nema að væla um það á netinu.
Sökum skorts á öðrum miðlum (mbl neitar að birta vælið mitt) þá hef ég ákveðið að væla bara á blogginu mínu.
Enda kannski (með 2 N’um) kominn tími til að skrifa e-ð hérna. Síðast þegar ég pikkaði hérna inn þá var ég að fara að byrja að vinna hjá Skýrr og e-ð.
Það er líklega ástæðan fyrir að ég hef ekki skrifað í svona langan tíma… fæ alveg nóg af tölvupikki í vinnunni?
Allavega! Fréttir eru þessar helst (sem engar eru því þeir sem lesa þetta þekkja mig nógu vel til að vita eftirfarandi):
Sama Toyotan….
Ég vinn enn hjá Skýrr, gott að vinna þar.
Hef ekkert menntað mig frekar, enda vitlaus.
Keypti mér íbúð á Njálsgötunni, enda ekki alvitlaus ![]()
Er búinn að brjóta allt og bramla í henni og er að fara að múra og skipta um innréttingu ofl.
Var að skipta um lag á Radio Blog Club af því að það var að gera mig geðveikan.
Búinn að liggja veikur síðan á Mánudag…… og það er BÚIÐ að gera mig geðveikan! :S
Vantar mat….
Leiter..
Aldrei að vita nema ég skrifi meira seinna (þúst innan þessa mánaðar
).
Posted by Addi as Rugl at 12:57 PM UTC




