DJÖFULSINS DRASL! SKo haldiði ekki að ég sé bara á leiðinni út úr bænum í morgun og rétt búinn að beygja til að halda austur og viti menn. Þá deyr bíllinn. Well ég hef samband við B&L til að sjá hvort að þeir geti gert e-ð fyrir mig og kemst að því að það er farin tímareim í bílnum. Flott. tímareim. Það er slatti af pening. Og aðallega ef að hún fer meðan að ég er að keyra bílinn. Þá þarf kanski að lpana heddið og fleira og fleira. En nei nei það þurfti ekkert þar sem að vélin var rifin núna í kvöld og dæmd ÓNÝT! Og var það Þá út af skemmd sem að hafði verið í vélinni þegar að ég keypti bílinn. Semsagt SVIK OG PRETTIR OG TEKINN ÞURRT BARA! Fallegt. Þarf að kaupa nýja vél þar sem að það kostar meira að taka þessa upp heldur en að kaupa aðra. Svo að núna þarf ég að þéna 120 þús´svona rétt snöggvast til að geta borgað vél í bílinn. Just my luck eh? Well ég fæ þá far með útgerðarstjóranum í NÓTT og fer svo út á sjó á morgun. Semsagt byrja að þéna fyrir vélinni sko
Well anyway. Life sucks and in which case I am in a hurricane. Farinn núna. Á taugum sko.
át…
Posted by Addi as Rugl at 10:48 PM UTC
3 Comments »
Sooooooooooooo hér kemu rsíðasta færslan í milljón ár! Er að fara austur aftur á morgun (Fimmtudag) og er svo að hverfa út á sjó í ekkert netsamband og læti og þá er minns dáinn irc dauða líka. *Snökt* Eins gott að þið komið öll til með að skilja eftir saknaðarkveðjur á þessu tuðhólfi meðan að ég er í burtu svo að ég geti lesið það þegar að ég kem aftur og logga mig inn. By the way, það verður haldið djamm þegar að ég tek mér frítúr sko. Og ekkert “já en” um það neitt. bara fyllerí og læti. Mála bæinn innanpíkubleikann sko ;D Og þá er eins gott að gera sig klárann þar sem að ég kem til með að vera í landi í svona viku og tek þá djamm þá helgi og það verður látið vita með viku fyrirvara TOPS sko. Anyway. Svona aðeins léttur núna eftir smá björ og farinn að sofa
nite nite PAKK
át…..
Posted by Addi as Rugl at 12:58 AM UTC
7 Comments »
Tjéddlingin: “Og hvernig viltu hafa hamborgarann þinn steiktann” Moi: “Medium Rare sko” Fæ ég svo kvikindið og VITI MENN! Er þetta ekki bara enn einn helv well done djös borgarinn! Og minns EKKI sáttur og tuða náttlega í þjóni þarna. Ðö Þjónn: “Já hvað er að?” Moi: “Sjáðu hamborgarann minn. Þetta er ekki medium rare eins og ég pantaði” (maður vill fá góðan borgara ef að maður er að borga fokking yfir þússara fyrir kvikindið) Ðö Þjónn: “Já hver taka pöntun þín” Moi: (að verða rasisti) “Hún!” Ðö þjónn: “Já þá þú tala við hana bara”. *URRRRRRRRRRRRRRR* helv PAKK!!!!!!! og þetta er þriðja fyrirbærið í RÖÐ sem að ég panta (allt á mismunandi veitingahúsum) sem að er fokkin EKKI EINS OG ÉG PANTAÐI! Steikin á Ak var WELL líka (en fékk fína steik aftur og bara sáttur þar). Hvað er málið? Bad Food Karma eða e-ð? Ég var örugglega slæmur kokkur í fyrra lífi eða e-ð og dónalegur við fólk alveg get ég trúað því. En jæja. Fékk svo einhvern medium rare (kind of) borgara eftir tuðið mitt. Og jámmm hann var eins vondur og hinn. Og eflaust líka “Spitburger” eða þá með innbökuðum skapahárum frá fúla útlenda þjóninum sem að eyddi svo restinni af tímanum sem að ég var þarna inni í að labba framhjá mér og horfa illilega á mig. Djös þursinn. Ég fer að opna veitingastað til að geta REKIÐ svona pakk og gert almennilegar steikur og borgara eins og fólk biður um. Já og ráða svona fúla úgggglendinga og reka þá líka. Hann var með e-ð pissed look allan tímann og meira að segja við alla. Ég hef sjálfur verið þjónn á hóteli og barþjónn hér og þar og maður verður að hafa smá þjónustulund og geta bitið í tunguna á sér sama hvað er að gerast. Og náttúrulega EKKI dissa fólk fyrir hluti sem að kokkurinn klúðrar. Ég er nuna officially búinn að gefa skít í báða mína uppáhalds staði þar sem að “gellan” er hætt að vinna á öðrum (já og hráir borgarar eldaðir af jamaica dúdd með viskustykki á hausnum) og hinum fyrir svona fúla þjónustu (já og well done hamborgarann). So from now on it’s just McDonalds eða e-ð. Maður borgar þó allavega bara slikk og býst ekki við neinu þar og verður þá síður fyrir vonbrigðum. Anyway. Farinn í sturtu að taka á dýrinu eða e-ð.
át…
Posted by Addi as Rugl at 7:48 PM UTC
10 Comments »
FULLT af myndum komnar upp núna! Eru á linknum hérna hægra megin og bara gaman að þessu. Beware of gay porn
Posted by Addi as Rugl at 7:44 PM UTC
8 Comments »
Hress.co.uk í morgun mahr! Núna er ég fólkið sem að ég hata alltaf þegar að ég er þunnur. Fór í sturtu og tók svo úr þvottavél og setti í þurrkara og setti í aðra vél í morgun þrátt fyrir að hafa verið að djamma í gær. Alveg skemmt! So anyway þá var djammað aðeins í gær eftir að við Rhesuz og konan hans fórum í bíó að sjá Pirates Of The Caribean (sem að er by the way KÚL MYND!). Steffi konan hans Rhes var að fá vinkonu í heimsókn og þær ætluðu að kíkja e-ð svo að ég og Rhes skelltum abra bjór í okkur líka og fórum svo út. Allur bærinn var þræddur í leit að góðum stað eða góðu fólki. Jafnvel báðum. Fundum svo slatta af góðu fólki og þar á meðal Flakkara (jámm. Enn annan irc nörrinn
) og bara fleira sniðugt lið. Endaði á því að við héldum á Kaffibrennsluna (góður staður mahr) og fengum okkur Erdinger (góður BJÓR mahr) meðan að við sátum og spjölluðum í smá tíma þar til að það átti að henda okkur út. Lokað sko. Alveg um hábjartann dag! En þá var haldið í áttina að “Skítuga” (A.k.a. Dubliners) en þar hrundu allar dauðu lýsnar úr höfði okkar allra þar sem að það var bara HEVÍ biðröð fyrir utan “skítuga”. Vott ðö hell!? Þá tókum við góða hægri beygju og fórum á glauminn. Það helv er alltaf opið og fullt af pakki sem að maður vill ekki þekkja. Bara fínt
Þar var einnig þambað soldið af bjór þar til að Flakkarinn ákvað að fara heim. Ég ákvað að fljóta með honum bara þar sem að ég nennti ekki að vera fullur fram undir 6 þessa nótt. Fyrir utan hittum við svo Rebekku Ríbokk og einhvern vin hennar sem að hét Gísli Eiríksson. Well með svona nafn þá kölluðum við Maggi Flakks hann bara Helga. Það segir sig sjálft af hverju ef að maður er e-ð inni í íslenskum barnabókmentum. Rebekkan var ekki að ná þessu. Enda var hún fuddlur.org sko. En well svo var kvöldinu slúttað þar og agggggglir heima að sofa. Og jámmm minns dottar aðeins og vaknar svo líka svona hress. Fæ þetta líklega í hausinn seinnna í dag eða e-ð
en þangað til. Hress.co.uk allavega og er að fara henda upp helling af myndum núna
át…!
Posted by Addi as Rugl at 10:30 AM UTC
9 Comments »
Það fór nú þannig með þessa blessuðu síðu mína að ég var strax skammaður fyrir stuld af henni Maju minni. Sem að er út af því að þær eru báðar settar upp á svipuðu bloggkerfi. Og þá var ekkert annað að gera enn að reyna að þóknast henni þó svo að enginn annar sæi neitt líkt með þessu. Oh well. Hún er kona. Maður á að hlýða sumum konum. So now I have a gloomy heavy look á síðunni. Mjög svona… well ekki jolly
Og ef að majan finnur ENN e-ð líkt með þessu þá er ég alveg búinn að gefast upp endanlega… Ég ER búinn að vera að reyna að læra á þetta drasl og kann ekkert svona forritun en HVAÐ gerir maður EKKI til að gera dömum til hæfis. Svo að ég kem til með að fara með stóra bók með mér út á sjó til að læra þetta helv. og geta bara farið að setja upp og selja mín eigin blogg og buddl kerfi. Sound good? Allavega væri það sniðug hugmynd um að nýta tímann úti á sjó. Það er svona eins og að vera í fangelsi, kemst ekkert í burtu og alltaf með sama pakkinu alla daga og sama matinn. Það er viku menu. Og ofan á allt þá er saltfiskur á miðvikudögum. Sounds fun don’t it? Þá tekur maður sig til að fer að læra smá HTML (já þadddddddddna ég sagði bara SMÁ! Sjís) og jafnvel fer að skoða e-ð meira í framhaldi af því. Ég verð semsagt eftir veturinn orðinn ofur nörri
Hversu lame er það? “Ég er sjómaður og Ubernörri”
Sjáum til með það. Kanski verð ég bara einhverfur í tölvuleikjum á meðan og verð svo bara fullur lúði þegar að ég kem í land. En allavega er sofutími núna þar sem að minns þarf stundum að vinna um helgar. Og er þá látinn vita UM MORGUNINN! Fallegt.. Stay Tuned. át…
Posted by Addi as Rugl at 2:25 AM UTC
8 Comments »
Jæja. Viti menn. Ég fékk hérna þetta fína pláss hjá kunningja mínum og bara uppsetta síðu. How nice is that?!?! No more pentagon scheit. Helv draslið hleypir mér heldur ekkert inn. Argasta dót. So now we’ve got a Addoz 2.69 ennþá meira öppgreid heldur en síðast. Nýtt bloggs og dót sem að ég kann ekkert á. get ekki einu sinni breytt síðunni minni þar sem að ég er ekki nörd í php. Hinsvegar er annað mál að eins og Majan mín er að monta sig af þessa stundina á #Iceland20+ rásinni þá kann minns svona smá html eins og hún. *Jeij og gríðarlegur fögnuður* We’re both semi-nerds. How sad….. Jæja já. En svo er annað mál með myndirnar frá því á Ak. Myndadótið sem að var verið að setja upp fyrir mig hérna á síðunni var víst meingallað og birti ekki myndirnar mínar *hrmpf* djös drasl semsagt. Svo að biðin verður aðeins lengri fyrir ykkur sem að hafa verið að væla um njúdí myndirnar sem að við tókum þegar að kitti drapst *GLOTT*. En það er allavega BUFF (massíft kúl hljomsveit sem að inniheldur m.a.s. tónlistarmenn úr Dúndurfréttum) í kvöld og grill á morgun! SO the weekend looks pretty groovie
Aggglir á Buff í kvöld og allir nema sumir og þá alls ekki SUMIR í grill á morgun
Þ.e.a.s. ykkur sem að hefur ekki enn verið boðið er…… já well EKKI boðið! Múhahahaha :Þ
óver and át for ná
Posted by Addi as Rugl at 5:41 PM UTC
8 Comments »
Nýtt blogg og dæmi? Núna kann minns ekkert á þetta. *Fikti fikt* Sjáum til eftir svona 2 daga hvernig þetta lítur út.
Posted by Addi as Rugl at 2:57 PM UTC
3 Comments »
software for service wordpress stats