She gives the night its dreams. She can uncover your darkest fear. And make you forget you feel it…. Ooooooog þessi fleyga lína kemur frá Chris nokkrum Cornell með lagið “Can’t Change Me” alveg einstakur snillingur þessi maður. Eins og margir muna kanski eftir þegar að hann var með hljómsveitinni Soundgarden á sínum tíma. En eins og gærkvöldið átti nú að vera einstaklega skemmtilegt þá kom Brooks mjög seint heim og var dauðþreyttur og þurfti svo að vakna til að fara í vinnu um 08:00 og þar sem að það tekur einhverjar 45 mín að keyra í vinnuna hans þá var ekkert gert nema að hanga fyrir framan blessaða sjónvarpið með snakk (og í mínu tilfelli bjór). Horfðum á Good Will Hunting . Alveg einstkalega hressandi mynd. *andvarp* En jæja þetta var svosem e-ð sem að ég hafði ekki séð áður og átti að vera e-r stór mynd. (talandi um þá hef ég ekki enn séð LOTR Return Of The King sem að er soldið súrt). En það á víst að vera e-ð sniðugara kvöldið í kvöld þar sem að Brooks verður ekki með svona hrikalega dagskrá varðandi vinnuna sína. Sjáum til hvernig fer. Ef að þetta verður e-ð sniðugt þá verða kanski nýjar myndir á morgun. Allavega tími til að fara að reyna að hanga og gera nákvæmlega ekki neitt enn einn daginn
Posted by Addi as Rugl at 4:39 PM UTC
No Comments »
Ahhhhh gott að vera að tapa sér smá í Atlanta rokki hérna með Black Crowes. En Viti menn, í þessum töluð….. skrifuðu orðum þá taka Stone Temple Pilots við með lagið Interstate Love Song. Sem að eru eitt uppáhalds bandið mitt í ðö hól væd vörld! Ásamt Pink Floyd og Muse enda allt góðir rokkarar þar á ferð
En svo varð ég fyrri þeirri furðulegu lífsreynslu að sjá tvö ný nöfn undir comments hjá mér. Merkilegur andsk! Þar á ferð voru meira að segja tvær glæsilegar dömur sem að ég hef bætt hérna við link listann minn. Var svosem ekkert að fatta hverjar þær væru fyrr en að ég uppgötvaði það að það er hægt að sjá það með því að smella á linkinn sem að þær setja við nafnið sitt í comments. Mr.Dumbass ég sko sjís. Væri interesting að vita hvaða leið þær álpuðust inn á síðuna mína þar sem að ég var ekkert að auglýsa hana nema til þeirra sem að heimtuðu að fá fréttir af mér þegar ég væri kominn út. VÓ! Og þarna mæta bræður mínir með látum. Kræst! Er hægt að fá hljóðkút á svona lítil dýr per favore. Ef að einhver veit um svoleiðis þá er það vel þegið takk. En ég er að fá hausverk af þessu svo að ég held að ég fari að koma mér út og fá mér sígó eða e-ð.
Later Pakk
Posted by Addi as Rugl at 8:55 PM UTC
4 Comments »
let me light your candle cuz’ mama I’m sure hard to handle now! Úffffff djö er ég að hlusta á gott lag. Þetta er “Black Crowes – Hard To Handle”. Þeir finnast hérna til hægri undir link sem heitir “frá Atlanta” endilega skoðið þetta smá. Jæja…. í fréttum er þetta helst. Ég skreið frammúr svona upp úr hádegi og sit hérna á náttbuxum í letikasti eins og venjulega. Er búin að vera í innri baráttu með það hvort að ég ætti ekki að fara að drullast í sturtu og klæða mig svo. Erfitt ákvörðun. Þá þyrfti ég að fara frá tölvunni og slökkva á tónlistinni og alles mahr. Það er bara vont. Með “White Stripes – Seven nation army” í spilun núna. Ekki gott að fara frá því. En jæja einhverntíman verð ég að binda enda á þetta. Dagurinn í dag stefnir á voðalega mikla leti og minna en ekkert að gera. HEY VÓ! Hang on, er ekki föstudagur???? Hey sko núna verður farið á einhvern stað mahr. Ég læt ekki loka mig inni um helgar. Vonandi er hægt að draga Brooks með á Wild Bills í kvöld. Djö langar mig að kíkja þar inn. En sko btw þetta er ekki bara einhver Country klúbbur. Ég hélt það fyrst (svona eins og auglýsingin gefur til kynna) en svo var bara verið að spila ágætis tónlist þarna. Ef að þeir fara í einhverja kántrí sveiflu þá tek ég bara með mér MP3 spilara með góður rusli
Spurning um að leggja snemma af stað í kvöld svo að maður geti náð sér í smá bita áður en að maður fer niður á Wild Bills. Svona einna helst á Hooters þar sem að þeir voru að loka þegar að síðasta tilraun var gerð til að fara þangað. Kanski eins gott. Hefði varla þolað öll þessi stóru fallegur búbbís skoppandi um þarna meðan að ég væri að reyna að éta. Æi what the hell. Verð að prufa þetta alla vega einu sinni svona til að geta sagt ykkur frá þesu
There we go! Þetta er bara gert í fréttaöflunnarskyni! Og svo verður maður að muna að taka með sér cameruna líka
Anywho!! Núna er ég farinn í sturtu og í föt þar sem að dagurinn lítur mun betur út en hann gerði áðan
Posted by Addi as Rugl at 6:33 PM UTC
1 Comment »
LOL baaaaaara fyndið ——-> Sniðugt
and that’s all folks
Posted by Addi as Rugl at 8:10 PM UTC
4 Comments »
Jæja það hafðist loksins að koma sér út í einhverja verslun með múttu undir stýri. Sem að þýðir að ég fékk að versla mér smá. Eða smá…. ja sko þetta var tvennar buxur, tveir síðerma bolir, tvennar boxers (ég varð. Þetta var silki mahr!), íþróttaskór (svartir og ekki kanalegir), Geisladisk, nammi já og svona náttbuxur til að hanga í á sunnudögum þegar að ég er ultra-latur. Allt þetta kostaði mig alveg heilar 6.800.- krónur. Velkominn til JúEssEi. Núna verður maður bara að fara að passa sig til að eyða ekki öllu áður en að ég byrja að vinna. Sem að verður vonandi mjög fljótlega. Bossinn er búinn að vera að þvælast út um allt. Þá meina ég sko upp til canada og niður að mexico. Hann stoppar ekki þessi maður. Úffffff…. Jæja, kanski að maður fari að byrja daginn og undirbúa sig undir það að vera latur.
Later Folks
Posted by Addi as Rugl at 4:02 PM UTC
2 Comments »
out of my life. I was wrong, I’m to blame…. I’m so alooooone…… Hmmmmm nei bíddu þetta er textinn við “Steelheart – She’s gone” nú jæja þá. Gott lag allavega. En the point here er það að Bryndís er farin. Fór til HondúRassssss í morgun (nótt fyrir mér sko) um 05:30. Minns var að sjálfsögðu svo hress að ég vaknaði og fór með og kvaddi hana…. ok ok nei. Ég var sofandi og anti-hress og rétt opnaði augun þegar að hún sagði bless og beygði sig niður og gave me a bye bye hug. Djös leti alltaf í manni. Illa gert. En eins og ég segi alltaf með tjéddlingar “She’ll be back!”. Sem að er reyndar raunin. Hún kemur aftur til okkar eftir einhverja 5 mán eða e-ð og verður hjá okkur yfir 4th of july og alles. Þá er partí og dæmi hjá öllum hérna. Planið er auðvitað að fara niður að Stone Mountain þar sem að er alltaf picnic og klikkað flott show. Laser show á fjallinu og höggmyndirnar látnar hreyfast með einhverju laser dæmi. Semsagt bara myndir audda. En djö hlakkar minns til mahr. Verður klikkað flott. Nokkur þúsund manns og djamm. Já og jújú líka hlakkar mann til að fá Bryndísina aftur. Ekki það að ÉG sakni hennar neitt. Mamma gerir það bara. Já og kanski krakkarnir. En ég hinsvegar er bara fegin að vera laus við hana. *Hnuss* Ekkert gaman að henni *sniff* *sniff* OK OK KANSKI SMÁ! Sjís….. En þá verð ég bara að bögga einhvern annan á meðan “Target aquired”…. “Reading file on target”…. “Targets name: Brooks A. Hood”…. “Mission: Make his life miserable” Múhahahahahah
Anywho….. spurning um að reyna að fara að gera e-ð. Já og éta óhollar Pop Tarts Vibba gott drasl sko. Sykurflipp
Anywho.. Later folks.
Y’all come back now ya’hear
Posted by Addi as Rugl at 9:54 PM UTC
3 Comments »
Minns er að fara í wall mart! Jíha. Allt svo hrikalega ódýrt þar. Hmmm verð að muna að kaupa bjór
Já og kanalega strigaskó. Svona hvíta ljóta og háa. Og ljósa gallabuxur sem að eru þröngar að neðan. Já og köflótta skyrtu. Þá er pakkinn kominn. Right? Sjáum til með það allavega
Hmmmm já og Bryndís að fara til Honduras á morgun svo að það er lítill tími eftir til að gera e-ð rugl. Já og KALT hérna núna. Bara niður í frostmark sko. Og þá er allt farið til fjandans hérna. Þeir eru ekki vanir þessu svo að flest allir skólar eru lokaðir hérna og sumir vegir líka. Sjís. Og við sem að erum svo vön þessu heima á ísl. Þykir bara normal. En nei þetta er í fréttunum hérna og viðvörun og alles á öllum rásum sem að koma þessu fylki við. En samt sem áður hef ég ekki enn séð snjókorn. Bara rigingu í gær og svo frostmark núna. Vírd. En jæja, krakkarnir komnir heim og þá er spurning um að fara að gera sig klárann í verslunnarferðina. Pikka meira seinna. Leiter pakks.
P.s. hvernig væri nú að pikka e-ð krot í þessa bloody gestabók þarna.
Feiti Kaninn
Posted by Addi as Rugl at 8:09 PM UTC
4 Comments »
Þið pakk heima á íslandi sem að vilduð fá að fylgjast með hvernig þetta er hérna bæði hjá mér og svo Bryndísi þá eru komnar myndir inn frá fyrstu ferðinni sem að við fórum í með myndavél. Skruppum upp á stone mountain (eins og áður hefur komið fram) og svo verður líklega e-ð fleira myndað áður en að hún fer svo til Honduras. Þ.e.a.s ef að það styttir einhverntíman upp
Heimska riging í allan dag.
Posted by Addi as Rugl at 12:04 AM UTC
1 Comment »
Well…. fór út í gær og kíkti á einhvern vin hans Brooks sem að er að vinna með honum í guitarcenter. Hann var að spila á einhverjum stað með hljómsveit sinni Niceguy sem að er svona Metal hljómsveit. Interesting dót allavega og ég kom hálf heyrnalaus út. Það var kind of fun. En dagurinn í dag. Oh whoopdeedoo…. I am having so much fun. *Hnuss* Hvað haldiði að heni móður minni detti í hug að gera í dag? Well þar sem að hún er að vinna við handsnyrtingu og svoleiðis crap þá dettur henni í hug að segja mér áðan “Heyrðu ég og Bryndís erum að fara út á stofu og ég ætla að gefa henni handsnyrtingu og bla bla blaaa…” og það er svosem allt gott og blessað nema hvað. Svo fylgir þessi setning “og þú verður að passa liðið á meðan”. Ója liðið…. hún tók systur mína með sér en skildi mig eftir með strákana. Sem að er kind of sucky þar sem að þeir eru alveg gjörsamlega mental í hausnum og slagsmál og læti eru málið hjá þeim. Allan bloody sólarhringinn! Stelpan er hinsvegar svona mátulega þæg af og til. En NEI. Skildu mig eftir með strákana mor. Takk fyrir það. I am having so much fun I could just vomit. Á meðan eru þær að þvælast og having fun doing girl stuff. Well…. that’s it! Núna heimta ég í kvöld að Brooks fari með mig á strippbúllu og þær verði heima með psychotic krakka (sem að ég kem til með að gefa sykur og kaffi áður en að ég fari svo að þau fari ekki að sofa. Svona just for revenge). Djös kjaftæði…. Minns langar að byrja að vinna svo að ég geti farið og verslað mér bíl og e-ð. Já og leigt mér íbúð jafnvel. Þetta er ekki alveg á óskalistanum hjá mér hérna í USA.
Posted by Addi as Rugl at 8:39 PM UTC
No Comments »
Man oh man am I ever loving this more than before. Það var svo heitt og nice í dag og mahr bara lá í sólinni og gat ekki hreyft sig. En fyrstu vonbrigðin gerðu vart við sig hérna í JúEssEi loksins. Það var nú reyndar ekki nema hversu lítill hamborgarinn var á Steak n’ Shake. Skítabúlla dauðans en góður helv sjeik. Svo að látið þann stað vera ef að þið komið hingað út einhverntíman. Ullabjakk sko. En svo var farið í “The Mall” að skoða. Og HELL YEAH! Það er allt svoooooo ódýrt hérna. Dæmi. Símar sem að kosta 29.990.- í FRÍHÖFNINNI takk, kosta 12.000.- hérna samningslausir. En bundið við fyrirtæki í 1-2 ár þá eru þeir komnir niður í 2-3 þús krónur. Hversu sick er það. Já og sími sem að tekur öll kerfi sem að maður gsm notar (semsagt Quad Band sími), eini svoleiðis á markaðinum, kostar 22 þús krónur samningslaus. Er ég að elska þetta land? Ömmmmmm já. Já og svo var kíkt upp á Stone Mountain í dag og það var alveg stuð líka. Sérstaklega fyrir Bryndísi sem að fannst þetta alveg geggjað. Ég var að sjálfsögðu að fara þangað í annað skiptið en samt að fíla þetta soldið mikið. Klikkað flott dæmi. Svo er spurningin um að kíkja á klúbb núna sem að er með svipaðann gólfflöt og smáralindin eða e-ð
Aldrei séð svona stórann klúbb. Og greinilega ekki Bryndís heldur þar sem að hún sagði strax og hún sá þetta “Ég hélt að það væru stórir klúbbar úti á spáni”
Verst að hún mátti ekki koma inn því að það er enn ein og hálf vika í 21 árs afmælið hennar og well…. þessi klúbbur er víst ekki fyrir yngra fólk. Sama þó að það sé bara vika sem að munar. Svo er svona Coyote Ugly dæmi í gangi þarna. Ef að stelpurnar á barnum eru ekki á kafi í vinnu þá hoppa þær upp á barinn (sem að er með súlum á og alles) og dansa. Og guess what. Fyrir þá sem að eru ekki við barinn þá er þessu varpað á skjái hér og þar á veggjunum. Hversu cool er það?! Svo sá ég alveg hrikalega fallega sjón í gærkvöldi. Var svangur og Brooks (fósturpabbi) rennir upp að Hooters þar sem að eru ekkert nema fallegar gellur með guðdómleg brjóst að vinna. Síjitt! Ég ætlaði að missa andlitið þegar að ég sá fyrstu (og einu) gelluna sem að var að þvælast þarna. En nei….. það var bara verið að loka eftir einhverjar 10 mín þegar að við renndum upp að. Heimski staður að loka klukkan 1 um nótt. En svo er allt morandi í stöðum sem að eru opnir allan sólarhringinn og við kíktum bara á IHOP í staðinn. Sem að var alveg fínt. hef aldrei séð egg fljótandi í fitu áður svona þegar að maður fær diskinn. Upplifun allavega. Svo að það stefnir víst allt í það að ég verði feitur eftir smá stund ef að ég tapa mér hérna í öllu sem að mig langar í
Anywho… drekka björ núna og hafa það gott þar til að ég fer út í kvöld. Until next time. ta taa…… Ömmmmm meina Later y’all.
Feiti Kaninn
Posted by Addi as Rugl at 1:21 AM UTC
No Comments »
Ég er svo að fíla allt þessa dagana. Minns er kominn til usa og laus af klakanum. Fyrsti dagurinn lofar góðu þar sem að ég var að kíkja út og það er ekki skýhnoðri að sjá á himninum og klikkuð sól. I am so loving this. Anywho þá var ég að spá í að endurvekja þetta blessaða blogg þar sem að fólk var að biðja um fréttir “að handan”. So this will be updated now. En merkilegur andsk! Það er kalt hérna akkurat núna. Frétti það rétt áður en að ég kom hingað að það væri e-ð kuldakast í gangi hérna úti. Það bara jaðrar við frostmark. *Brrrrrrr* EN SAMT! ekki snjókorn að sjá hérna og allt really nice looking. Er í klikkað fallegu hverfi og kem til með að fara út og taka myndir af öllu í dag til að sýna ykkur pakkinu heima. Svo er bara að fara að versla sér bíl núna á eftir eða e-ð sniðugt og halda áfram að njóta kanalífsins. Verða feitur af því að éta bara á Wendy’s og Burger King og drekka Bud (yah ræt!). Anywho, back to the real world and I am goooooone for now.
Posted by Addi as Rugl at 4:34 PM UTC
3 Comments »
software for service wordpress stats