Skip to main content.
29. Dec 2004

OMGOSH!

:D !!!!!! HAH sniðugt. En ætla samt ekki að segja ykkur :D MÚHAAHAHAHA á forvitna pakkið mitt :D En ég sá svona smá flash úr fortíðinni áðan. Mein gott þetta var sniðugt að sjá. Jeij og allur pakkinn.
EN NÓG UM ÞAÐ! Múhah! Ég er fullur. Afengisfullur? Ónei! Kaffifullur sko. Og það á góða helv kaffinu enn og aftur. Lavazza maskínan hans Þóris er best. Elskana sko. Og þráðlausa netið hans niðri á Hóteli líka. En það skortir ekki verkefnin á kongó frekar en hina dagana. ÉG skellti mér í það að sipta um vatnskassa í Mözdu pallbílnum hans pabba. EN það var eki nóg greinilega. Það var bara næstum smíðaður nýr bíll utan um kassann. Settum vökvastýri í hann og allan andsk. Og pabbi er náttúrulega húmorsmaður mikill og tilkynnti öllum að vökvastýrið hafi nú bara verið sett í bílinn til að ég gæti keyrt hann. HAH! Kallar mann bara eymingja! Það liggur nú bara við að ég versli handa honum miða á áramótaballið hérna til að geta tekið kallinn og hent honum út með látum :D Nei nei segi svona. Fíni náunginn þessi pabbi minn sko. Og bara gott að vera hjá honum í vinnu sýnist mér þar sem að maður er oft að vinna til klukkan 3 um nóttina í einhverju veseni EN fær nú samt af og til bjór með því veseni. Það er ekki hægt á mörgum vinnustöðum ;) En meira kaffi og spjalla við Þóri.

Addi Kongóbúi :D

Posted by Addi as Rugl at 4:19 PM UTC

3 Comments »

27. Dec 2004

Busy busy Kongó

Grrrrrrrrrrrrrríðarlegt stuð búið að vera á manni á kongó núna mahr. Snilld. Og lítur allt út fyrir að ég verði hérna í þónokkurn tíma í viðbót. Sem er bara gott sko. Enda gott að vera hjá Pabba þessa dagana þar sem að okkur kemur svoa helvíti vel saman síðastliðin ár. Eflaust því að ég er svo gamall núna að ég fer að ná honum í aldri bráðum. :D En jámm busy kongó mahr. Búinn að mála, leggja parket, legja meira parket og svo setja upp ofna í sjoppunni og svona. Það hefur ekki verið svona mikið að gera hjá mér í langan tíma. Og samt býst ég við því að það verði meira svona þegar að nýja árið mætir. En áramótunum verður eytt á kongó auðvitað og þá í dyravörslu á áramótaballi á Hótel Framtíð sem er btw alveg besta hótelið sko. Hvet alla til að kíkja og gista eins og eina nótt og fá sér GÓÐA HELVÍTIS KAFFIÐ úr Lavazza maskínunni hans Þóris hótelstjóra. Gúdd stöff. En ég fék símhringingu með skömmum um bloggleysi svo að ég þaut niður á hótel (með viðkomu í ljósatíma í “Íþróttamiðstöð Djúpavogs”. Ætla að verða Plebbi sko…… MEIRI PLEBBI ÞÁ ELMAR!) og beint á þráðlausa netið að spjalla. Enda hef ég vanrækt einstæðu mömurnar mínar líka síðan að ég kom með msn leysi og verð að bæta upp fyrir það. Ja eða allar nema eina. Það er sko gemsasamband á kongó :D Og ég er orðinn svo háður viðkomandi að ég verð að hringja af og til eftir milljón tíma af msn spjalli undanfarna 2 mánuði eða svo. Ég er bara á góðri leið með að verða frímerki! :D Múhahahah nei nei segi svona. En góður bjór og gott fólk hefur verið allsráðandi á kongó og mun líklega verða næstu daga fram að áramótum. Svo ég bið bara að heilsa í bili og er farinn til mein fater að fá mér björ og gera e-ð af mér. Later pakk!

Addi Kongóbúi ;)

Posted by Addi as Rugl at 5:12 PM UTC

6 Comments »

20. Dec 2004

Why do I love Carlsberg?

Jööööösssssssssssssssssss!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Fyllerí, meira fullur! Þunnur! Skemmdur og fullt af fallegu fólki og gaman að hitta lúðana mína! Síjitt hvað er langt síðan að ég hef skemmt mér svona vel. :D

En Kongó á morgun þar sem rólegheitin taka við nema þegar að faðir minn þrælar mér út.
FARINN ÚT!

Addi

Posted by Addi as Rugl at 2:55 PM UTC

17 Comments »

17. Dec 2004

guess who’s back

Back again… ójá. Kominn á klakann. 2 carlsberg búnir. :D Hangandi heima hjá Kristínu og er enn að jafna mig á tímamismun. Geri það a morgun. En allavega. Bara að láta vita að ég sé mættur :D
Ömmmmmmm…. SJÁUMST!!!!!!!
AddIceland

Posted by Addi as Rugl at 2:22 AM UTC

10 Comments »

15. Dec 2004

Lokablogg JÚESSEI dvalar. í bili :D

Jæja! Þá er maður kominn til Baltimore og er að bíða eftir vélinni til íslands. Verslaði mér internettengingu á kortið hennar múttu auðvitað. Takk mamma! Svona er að loka sínum kortum þegar að maður fer frá landinu. Böggles. Spræt og pulsa! Goodie. Allt sem að stækkandi maður þarf. Fullt af næring…….. æi ég var svangur. Og þetta var dýr pulsa! Svo e-ð er í henni. Yfirvikt? Nei hvernig dettur ykkur það í hug með mínar HUGE töskur. Er núna rúmum 200 dollurum fátækari. PAKK! Skíttíðigbeyglanðín! Allavega. Saðbrenndi mig akkurat í þessu á Café Mocha. Ái. Sýnir að maður á ekkert að vera að bölva öðrum svona. Hóstbölvuðbeyglan. Flugvélin mín var að renna í hlaðið og ekki nema klukkutíma bið eftir að ég megi fara um borð. Jeij og önur fleiri gleðióp. Þá er bara að opna hugann og gera sig klárann fyrir analskoðun í keflavík þar sem að ég er ekki beint með minsta draslið. Bölvað. En er svosem með kvittannir fyrir ölu tollskyldu :D Svo vonandi slepp ég þarna út án þess að verða misnotaður. Sjáum til. Annars myndi ég eflaust ekkert segja frá því ef einhver tollvarða pervertinn myndi misnota mig. Myndi kenna skónum um göngulagið bara. EN NÓG UM ÞAÐ! Farinn að versla sleipiefni til að létta mér kvalirnar í keflavík. SJáumst á íslandi PAKK!

AddÁIMAÐUREKKIALLAHENDINAi

Posted by Addi as Rugl at 11:46 PM UTC

8 Comments »

13. Dec 2004

*HÓSTI HÓST HÓST*

Veikuuuuuuuuuuuuuur!!!!!!!!!!!!!!
Og hverju taka veikir menn upp á að gera. Nú ekki hanga heima. Nei nei. Þeir fara sko út á sunnudagsmorgun og fara niður í park niðri í miðbæ á SKAUTA skal ég segja ykkur (var að segja ykkur). Ójá þú/þið/þau last/lásuð rétt. Skautar. Ég hef kannski gleymt að minnast á það að ég hef áralanga reynslu í listdansi á skautum. HAHAHAHA KANNSKI EKKI BJÁNI! En fór nú samt á skauta þar sem að það var fleira fólk að fara og ég varð að gera e-ð hérna áður en ég fer. Og viti menn. Bara gaman. Þrátt fyrir litlar stelpur sem að skautuðu hringi í kring um okkur og hlógu að því hversu “góð” við værum. Mjög hressandi fyrir egóið að vera svo næstum því keyrður niður af litlum stelpum á fljúgandi ferð. Og svo einhverjum djölfuls skauta meiníak! Og ég datt þegar að hann sveigði í veg fyrir mig þar sem að þessir skautar voru greinilega ekki með broddum til að stoppa á. WTF segi ég bara. Og horfði svo skömmustulegur á litlu 10 ára stelpurnar sem að tóku þarna nett stökk með skrúfu yfir mig þar sem ég sat marinn á afturendanum. Hressandi mjög!

Eftir að þessu ævintýri var lokið þá röltum við smá í parkinum og tókum auðvitað myndir (fyrir utan þær sem að ég og ein stelpan tókum þegar að við stungum af. Enda fórum við að laumureykja. Ullabjakk og ógeð. Leið ekkert betur eftir það sko.) og þær myndir munu birtast sem og aðrar vanræktar þegar að mér BLOODY SÝNIST og ég nenni! En já! Fyrir þetta var farið á einhvern voða dýran og flottan veitingastað í morgunmat/hádegismat. Brönsj á slæmri ísl/ensku. Það var alveg allt í lagi. En var það jafn gott og verðið á þessu gaf til kynna? Nei nei. En ég smakkaði fullt af yummy drasli þarna samt sem áður. Og eftir skautaferðina miklu þá var haldið niður á annað svona næææææææææææææææs kaffihús. Og laumureykjugellan tjáði mér að þarna væru bestu ostakökur í fylkinu (ef ekki heiminum) og vitiði, ég er bara alls ekki frá því að hún hafi haft rétt fyrir sér. GOTT STÖFF. Og fékk mér líka einn þann al merkilegasta bjór sem ég hef séð. Hann hét “Monty Pythons Holy Grail Ale”. Ef það er ekki catchy nafn þá vil ég vinsamlega biðja ykkur að koma með annað og betra. Good luck. Já og auðvitað með ostakökuna líka. Bendið mér á aðra betri ef þið teljið ykkur vita um eina slíka. Good luck með það líka :D

Í dag. Er mánudagur. Vinna. Veikur í vinnunni. Svo mætir allt í einu bíll með GÁM. Sem ég vissi ekki af. Gott að heyra af svona hlutum um leið og þeir gerast og ekki með fyrirvara. Æði smæði sæ…. jájá. Fínt fínt. Ríma stíma. EN nóg af te. Tók með mér pakka í vinnunna bara og er á bolla nr……….. 4 eða 5 held ég. Og btw. Ef þið þekkið einhvern sem drekkur “Kamillu te” vinsamlega sláið viðkomandi utanundir frá mér þar sem að það er mesti viðbjóður sem ég hef smakkað. Verra en Dr. Pepper og Root Beer.

En það verður ekki fleira að sinni hjá okkur í kv…… Nei Rúber er búinn að nota þetta.
ömmmmmmm THEENDTAKKFYRIRBLESS!
Addi

Posted by Addi as Rugl at 3:26 PM UTC

6 Comments »

11. Dec 2004

We need more cowbell!

Veikur….
Druuuuuuuuuuuuuuuuuullu veikur.
Æði. EN það stoppar mann ekki alveg! (svona að hluta til samt) Fór í Mall í dag og verslaði júlengjafen handa “Litlu” Frænku og dæmi. Sit núna og er að hlusta á gamalt Def Leppard á 96 Rock og það er allt morandi í cowbell…. bara snilld.
more cowbell!

Grænt Te er líka snilld. Te yfir höfuð er snilld sko! Mér er ALVEG SAMA hvað Mýslan mín segir um að það sé ekki e-ð macho og dæmi. Enda er ég síst þekktur fyrir að vera að springa úr einhverjum macho stælum. Á maður kanski að einbeita sér að því núna bara. Verða brjál macho. Jámm. núna er ég farinn að lyfta eins og moðerfökker og ætla að verða HJÚDS og svo liggja svo mikið í ljósum að ég verð alveg kolsvartur af sortuæxlum. Eða bara að nota brúnnkukrem og verða APPELSÍNUGULUR! (já ég var að skoða myndasíðu áðan hjá vini vinkonu vinkonu vinar vinkonu frænku vinkonu minnar. Og það var appelsínugult og þrútið)
Það er annaðhvort það eða…… nei andsk. Ég held ég sleppi því. Ætla að gista hjá Kristínu Sætu þegar að ég kem í bæinn. Þar mun ég gerast nýja vinkona hennar og við ætlum að vaka frameftir að horfa á rómantískar gamanmyndir og poppa og/eða éta Ben & Jerry’s ís. Af hverju? Jú því ég vil vera girnilegur djöfull. Og SJÁIÐI bara allar vinkonur hennar Kristínar. ALLAR sætar (NÆSTUM ÞVÍ jafn sætar og hún). Svo að þetta er pottþétt plan bara :D Getur ekki klikkað.
En jámmmmm svo er það íslandið……. maður er boðinn þvers og kruss um landið og stórborgina RVK þann 18 des. Ég verð að hlaupa bara á milli. Því ekki ætla ég að missa af partýi/útskriftarveislu/ammli/fylleríi yfir höfuð/NEINU! Svo ef ég verð áfengisdauður eða bara dauður eftir hlaup, átök og gríðarlegt fyllerí að morgni 19 og þið sjáið mig liggandi í ræsinu vinsamlega hendið mér í skottið á bílnum og hendið mér í meðferð.
Sjáumst sún.

Addi

Posted by Addi as Rugl at 1:20 AM UTC

15 Comments »

08. Dec 2004

Mayyyybeeeeeee

you’re gonna be the one that saves me. And after aaaaaaaaaaaaaaaall you’re my wonderwaaaaaall!
Ójá. Verið að hressa upp á playlistann með gömlu góðu sko. Og mikið rosalega er skrýtið að maður hafi ekki komist inn í Oasis bylgjuna á sínum tíma. Eins og það er nú gaman að þessari hljómsveit. Ég fílaði þá voðalega lítið á aðal tímanum þeirra. Nema með kanski einn disk….. man ekki einu sinni nafnið á honum :D En það voru samt alltaf lög svona sem að var/er skylda að kunna á gítar og auðvitað að geta sungið með þegar að allir eru blindfullir að raula þau. Wonderwall er það ofarlega á lista að sjálfsögðu. En Allt þetta um Oasis og af hverju? Jú því að ég hef voða lítið að segja þessa dagana. Er orðinn latur bloggari og blogga líka ekki um alveg allt. Þrátt fyrir löngun til þess stundum ;) En svo gæti það líka bara verið hárið þessa dagana í minni uppreisn gagnvart hárgreiðslufólki hérna í USA sem að skilur engan vegin að ég viti ekki hvaða bursta á að nota á rakvélina meðan að hárið er látið flakka í klassíska suðurríkja burstaklippingu. Svo að já ég er með lubba. Oasis lubba? Nei ekki enn. Hann kemur með tímanum :D Hefði verið með Oasis lubba núna ef ekki væri fyrir það að ég ákvað að prufa enn eina stofuna og biðja gelluna um að fara ALLS EKKI MEÐ RAKVÉL í hausinn á mér. Og ALLS EKKI STYTTA MIKIÐ. Viti menn! Hún náttúrulega rífur upp rakvélina og segist aaaaaaaaaaaaaaaaaaðeins ætla að snyrta svona mullet’ið í hnakkanum. Jújú ég er sáttur við það enda sagði ég “Ég vil ekki labba hérna út með sítt að aftan og brodda”. Næsta sem ég veit þá er bara rakað allt til helvítis og ég er kominn með svona freeeeeekar stutt hár aftur. takk takk helvítis beyglan þín. Svo að núna þá er “derhúfuhárið” komið aftur (Skilgreining: ÞEgar að maður er með akkurat millistigið á nógu stutt eða nógu sítt og það’ er svo ekki sniðugt að það ætti að skylda mann að ganga með húfu þar til að það lagast). Og er ég að fara í klippingu? HELL NEI! Ég skal fá mér lubba aftur. Someday you will find me caught beneath the landsliiiiiide in a champagne supernova in the skyyyyyyy.

Addoasisbítlaeitthvaðmikiðhárbaraskrújúsemaðtuðayfirþvíþaddna

Posted by Addi as Rugl at 10:39 PM UTC

18 Comments »

06. Dec 2004

Tónleikar…

Jámmmmmmmmmmmm ég fór semsagt á tónleika í gær sem að var alveg gríðarleg upplifun. Seldist upp að lokum og voru þá víst um 10.000. manns í höllinni.
Fyrstir á svið voru bretarnir í “Keane”. Ég get ekki annað sagt en að þeir hafi komið mjög skemmtilega á óvart þar sem að ég vissi lítið um þá og bjóst svosem ekki við miklu. En hresst band og góð tónlist og bara gott um þá að segja þrátt fyrir að hljómborðs/píanóleikarinn hafi hoppað meira um og slammað heldur en flestir trommuleikarar gera.

Næstir á svið voru enn aðrir bretar. Hljómsveitin “The Music”. Aðal söngvarinn kom mér ekkert lítið á óvart með alveg snarbilaðri sviðsframkomu þar sem að hann dansaði eins og teknófrík (og í síðu peysunni og alles við það líka en með brjálað sítt gríðarhrokkið hár) á milli þess sem hann og gítarleikarinn skiptust á að vera í aðalhlutverki í tónlistinni. Hressir með einsdæmum og ég verð að segja að þeir komu líka skemmtilega á óvart. Svona þar sem að maður hafði EKKERT heyrt af þeim. Vaknaði með lagið sem þeir enduðu á fast í hausnum á mér í morgun. Er það ekki bara góðs viti?

Svo komu skólarokkararnir í “Jimmy Eat World”. Þeir………. ja stóðust allar þær væntingar sem að ég bar alls ekki til þeirra. Þeir hafa ekki verið í miklu uppáhaldi hjá mér hingað til og eru það ekki enn. Ég skal samt alveg hiklaust viðurkenna að ég fíla alveg 2-3 lög með þeim bara vel. En mér fannst þeir ekkert spes þarna frekar en venjulega. Ja nema einu sinni! Þeir tóku lagið “Last Christmas” í nokkuð skemmtilegri útgáfu. Alveg góður gítarleikari á ferð þarna sem að virtist skemmta sér mjög vel við að spila svona rugl í nýrri útgáfu :D

Og SVO! Guess who! MUUUUUUUUUUUUUUUUUUUSE!!!!!!!!!!!!! OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOH hvað þeir voru góðir! ELSKAÐÁ! Þeir fóru alveg á kostum og allt fólkið sem að klappaði ekki fyrir þeim þegar að þeir voru tilkynntir sökum þess að þau höfðu bara ekki heyrt um þá sátu alveg gapandi meðan að fyrstu 2 lögin voru flutt í röð. Svo spruttu allir öskrandi á fætur þegar að þeir stoppuðu. ÞEir tóku alveg snilldarútgáfur af hinu og þessu sem að maður þekkir alveg utan að með þeim og komu mér soldið á óvart með hvað þeir þora að ganga langt í svona tónleikadjammi með lögin sín. En auðvitað stóðust þeir allar væntingar mínar og rúmlega það. Ég var bara í himnaríki meðan að þeir stóðu á sviði. Og að sjálfsögðu sá ég líka þegar að ég fór út af tónleikunum að það hafði allt selst upp með Muse vörunum hvort sem það voru trucker derhúfur eða bolir. Svartir og Camo. Að sjálfsögðu verslaði ég mér eitt stykki svartann Absolution bol!

Og svo kom aðalnúmerið. Velvet Revolver… Jæææææææææææææææææja……… sko stundum fær maður á tilfinninguna að sumir séu að verða gamlir. Auðvitað gaman að sjá þessa fýra og horfa á slash fljúga beint á hausinn fram fyrir sig með gítarinn þegar að hann ætlaði að stíga niður á hátalara fyrir framan sviðið. En auðvitað tókst honum að bjarga gítarnum og hélt honum þétt að sér þegar að hann féll á hnén. Og viti menn! Hann bara rís upp á hnén og byrjar að rippa sóló. Góður. Þrátt fyrir að vera í níðþröngum leðurbuxum í einhverjum sylgjuboots utan um ;) Og svo STP sprautan sjálfur hann Weiland gekk heldur langt í bjánaskapnum fannst mér í þetta skipti. Ekki bara átfittið (sem var ekki svona “Fríkí? En kúl!”) heldur einnig sviðsframkoman. En hann virtist samt slaka sér í fíflagangi rétt á meðan þeir tóku gamla STP slagara eins og “Crackerman” og “Sex Type Thing”. Sem var auðvitað hrein snilld að heyra. Sem og Falling to Pieces þó það sé ekki STP lag. Enda er þetta ný hljómsveit :D En allavega…. þeir virtust vera meiri fyrir yfirgnæfandi hávaða heldur en gæði svo að ég var ekki að njóta þess að sjá þá jafn mikið og ég hafði búist við að gera. En skemmtileg upplifun samt :D Myndir…… koma seinna. Nenni ekki núna sko. En þær eru ekkert í brjáluðum gæðum þar sem að það voru gaurar út um allt sem að hótuðu að hirða myndavélarnar ef þeir sæu þær á lofti. Mjög mikið um myndir teknar milli fólks og engin þeirra með flassi auðvitað enda var ég það langt í burtu að það hefði ekki gert neitt. En þá hefði verið betra að vera með e-ð annað en litla Digital vél :D

Until next time.
Ta taaaaaaaaaaaaaAddi

Posted by Addi as Rugl at 11:49 PM UTC

6 Comments »

04. Dec 2004

*Rooooooooooooooooop*

Jámmm það er rétt essssssssku Mýslan mín ég er alveg horribly lélegur bloggari núna…. Ég bara veit ekkert hvað ég á að röfla…. Það er verið að halda upp á afmælið hjá tvíburunum núna. NOKKUR stykki mætt hingað! Og hvað gera þau. Jú! Tilkynna að ég sé með snáka hérna uppi í herbergi. Og það er hlaupið upp og bankað! Ég opna hurðina og eru þá ekki svona 5-6 stykki 7 ára stelpur alveg glottandi út að eyrum “Can we see the snakes?” …….. Ekki núna……… á eftir kanski. (leiðinlegi bróðirinn mahr!)
En jú eitt öppdeit. Sem viðkemur Jólagjafalistanum. Ég verslaði mér 2 aðra diska með A Perfect Circle og vantar þá bara eMOTIVe þar sem að ég á núna allt nema hann. Svona note for you christmas shoppers ;)
Hmmmmmm daddaraaa… hvað meira… ……
AH JÁH! Ég er að fara á KILLER tónleika á morgun!!!!!!!!! Þar verða engir aðrir en MJÚS, Velvet Revolver og Keane í aðalhlutverki. Svo verða einnig hljómsveitirnar The Music(aldrei heyrt um þá) og svo Jimmy Eat World. Aðeins minna spenntur fyrir þeim reyndar. Eh HEY! MJÚS OG VELVET REVOLVER! Já og Keane. Virðast vera ágætis band bara….
En jámm þá pikka ég eflaust e-ð meira eftir það svo að Mýslan mín hætti að titla mig sem latasta bloggarann. Until then……
ROCK ON!
slamm!

Addlanta Rox

Posted by Addi as Rugl at 10:18 PM UTC

8 Comments »

02. Dec 2004

MEIRA!!!!!

HÚN Á AMMLI Í DAG! HÚN Á AMMLI Í DAAAAAAAG HÚN Á AAAAAAAAAAAMMLI HÚN ÍRISLITLAFRÆNKAOGTROMMUMEINÍAK! HÚN Á AMMLI Í DAG!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Íris!

AfmælisAddi 2.0

Posted by Addi as Rugl at 6:39 PM UTC

4 Comments »

01. Dec 2004

!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

HAPPY BIRTHDAY TO YOU! HAPPY BIRTHDAY TO YOU! HAPPY BIRTHDAAAAAAYYYY ELISABETHANDALEXANDER! HAAAAAAAAAAAPPY BIRTHDAY TOOOOOOOOOOOOOOOOO YOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOU! AlexaBeth ; )

Jeiiiiiiiij *klappi klappi klapp*

AfmælisAddi

Posted by Addi as Rugl at 6:37 PM UTC

11 Comments »

Oh christmas tree

oh christmas tree, oh christmas tree, oh christmas tree… oh christmas tree! Oh christmas tree, oh christmas tree, oh christmas tree………… Sure I know the words……….
bara svona að syngja smá jóla jóla hérna til að hleypa….. barninu í mér út og láta ……jólagleðina taka öll völd? Jámmm something like that. Það sagði Bylgjan allavega að ég ætti að gera :D Og það er jú kominn Desember svo að það er löglegt að syngja þetta núna held ég.

Jóla Addi

Posted by Addi as Rugl at 6:29 PM UTC

2 Comments »

  
software for service wordpress stats