Ég á 25 ára ammmmmmli á föstudaginn næsta. 4 feb semsagt. Allir að senda mér ammlis sms og kveðjur takk. Ég nenni ekki að halda upp á það með öðrum hætti en vanalega. Góða steik og svo bjór
!!!!
Gamli Addinn eftir smá
Posted by Addi as Rugl at 8:26 PM UTC
8 Comments »
Þá eru komin 4 stutt albúm í viðbót í myndasafnið svona til að byrja með. Svo sjáum við til hvað ég nenni að setja seinna.
takkogbless
Adddddddi
Posted by Addi as Rugl at 8:23 PM UTC
1 Comment »
*Dundi sér að setja inn myndir….*
Posted by Addi as Rugl at 7:21 PM UTC
1 Comment »
Net-leti….. það er málið. Nenni voðalega sjaldan að hanga á netinu lengur. Það er skemmtilegra að fara bara í ræktina eða sund og miklu þægilegra. En NEI það er lokað á sunnudögum! Þar sem að menn hafa venjulega hópast í pottana eða sund í þynnku eða bara til að brjóta upp daginn í aðgerðaleysinu.
En í fréttum er þetta síst.
Í morgun skreið ég heim eftir langan vinnudag. Því að ekki nóg með það að ég hafi pantað að fá að vinna á Þorrablóti kongóbúa heldur þurfti ég að gramsa e-ð í tölvu fyrir þorrablótsnefndina líka. Svo að þetta var laaaaaangur dagur. Sem byrjaði reyndar vel með smá líkamsrækt um morgunin sem var fylgt eftir með ljósatíma og svo í sund. Og JÁ að synda líka meira að segja
Maður er allur í heilsunni sko. *Sötri kaffi og reyki sígó meðan ég pikka þetta*
En annars þá er mest lítið að gerast hjá mér þessa dagana. Það þýðir lítið að pikka um það að við höfum verið að koma Subaru’num út og taka loksins Benz’inn inn og ég sé búinn að rífa hann í tætlur og það líði að því að við förum að sprauta hann. ……… Neibb. Ekki að virka.
Svo ég verð bara að fara að taka mér tölvutíma frá einhverntíman og fara í gegn um myndir og drasl og reyna að koma þessu á netið svo að fólk sé ekki að skamma mig alltaf fyrir að trassa þetta. Æi já sjitt! Talandi um skammir. Rebekkan mín sagði að ég mætti ekki skrifa ritgerð því hún nennti ekki lesa þetta. Damn!
óver end át.
Addi
Posted by Addi as Rugl at 3:05 PM UTC
2 Comments »
Það er verið að SPAMMA gestabókina mína. Heimska pakk! Og ég get ekki editað og strokað neitt út og dæmi…… kanniggi eða hef ekki aðgang. Bölvað! En frá kongó er þetta að frétta. Same old same old. Nóg að gera og enginn tími fyrir netið. Bölvað. Veit ekki einu sinni hvort maður á að fara að reyna að fá sér þetta heima. Allavega. Sjáum til. Þangað til þá verðið þið bara að venjast því að það sé ekkert að gerast á síðunni og þegar að það sé e-ð pikk þá er það voðalega innihaldslítið e-ð. Set bara myndir og dót seinna til að bæta upp fyrir þetta.
Addi Kongóbúi….
Posted by Addi as Rugl at 1:30 PM UTC
7 Comments »
Jæja! Eins og venjulega á kongó er vitlaust að gera svo að enn og aftur er stutt færsla núna. Nýr banner kominn (myndin efst) og svo verið að kanna ADSL möguleika á heimilinu þar sem að ég verð hérna eflaust fram á næsta vetur eða e-ð. Milljón verkefni sko. Bjór er góður!

Og þá sérstaklega þegar að maður er uppgefinn eftir vinnu

Og þarna hafið þið það. Nóg að gera og fullt af myndum teknar reglulega. Skal reyna að drullast til að setja e-ð af þessu upp á næstunni.
Ta ta í bili.
Pé Ess. Biggi. Linkurinn hefur verið lagaður.
Posted by Addi as Rugl at 10:24 PM UTC
7 Comments »
Alveg stendöd sko netlega séð. Og af hverju? Jú því að ég er ekki með netið heima hjá far og það er m.a.s. alveg spurning um hvort ég taki það nokkuð þarna inn. Það er ekkert svo hræðilegt að vera netlaus þessa dagana. Maður hefur alltaf síma. Svo ef þið viljið tala við mig þá getið ÞIÐ hringt ekki nenni ég að eltast alltaf að hringja í fólk sem er bara SOFANDI eða í STURTU *skjót* og *Skjót* þegar að ég hringi.
En allavega, you’ve got the number áttasextveirsexsjösextveir og getið bara bjallað í stað þess að skamma mig fyrir fjarveru á netinu.
En merkilegir hlutir að gerast! Keypti mér kort í líkamsrækt og fór m.a.s. í gær! Og hóst púst og másogblás. ÉG hef ekkert þol! Hljóp í svona korter til að hita upp og hélt að lungun á mér ætluðu að rifna. En tók samt sem áður svona klukkutíma púl þar sem að ég meika ekki meira sökum hreifingarleysis undanfarið. EYMINGI!
Annað í fréttum….. Bílar, hús og pulsupottar. Allt í viðgerðum eða á biðlista yfir viðgerðir. Nóg að gera. Fullt af bílum og 2 hús m.a.s. Sé fram á það að maður verði hérna í smá stund semsagt. Nema ég haldi áfram að vera svona mikill morgunhani og skríða frammúr um hádegi og verði gerður brottrækur frá austurlandi
Síminn hringir og ég er farinn að gera við eitthvað af ofangreindu.
Síja!
Addi Kongódjöfull
Posted by Addi as Rugl at 2:03 PM UTC
9 Comments »
software for service wordpress stats