VATNSBERI 20. janúar – 18. Febrúar
Vatnsberinn verður hugsanlega ástfanginn í dag. (Ást við fyrstu sýn er líklegri en ella.) Villtar og skapandi hugmyndir láta líka á sér kræla.
Og þá er það komið á hreint. Ég fer ekki út úr húsi það sem eftir er dags! Close call þarna. Fjúffffffffff
Posted by Addi as Rugl at 7:22 PM UTC
7 Comments »
Vissuð þið að nýji (ekki svo mikið nýr lengur) Green Day diskurinn er bara helv góður? Var að komast að því um daginn sko. Góði diskurinn
OG talandi um að vera eftir á, þá er Mars Volta hrikalega gott band. Mér finnst samt sem áður eldri diskurinn þeirra betri en sá nýji. Sá nýji er hrikalega flott tónistarverk og vandað og allt það. Bara aðeins of mikið af svona…….. rugli og dæmi milli laga. En svona þegar að öllu er á botninn hvolft þá segi ég bara Takk Elmar
Posted by Addi as Rugl at 10:36 PM UTC
1 Comment »
smá tiltekt þar sem mér leiddist smá. Var að henda bloggum sem að eru óvirk eða sem ég les ekki. Ef ykkur finnst vanta link á ykkur þá skuluðu bara blogga e-ð! Þoli ekki dauða linka…..
Posted by Addi as Rugl at 10:29 PM UTC
No Comments »
Laugardagur: Mjög rólegur dagur til að byrja með. Fór í vinnuna um 9 og hafði það bara helv fínt í vinnunni þar sem að það nennti ekki nokkur annar maður að vinna svo að það var bara ég og Mars Volta sem að vorum að þvælast þarna. Kom svo heim seinnipartinn og ákvað að skella mér í Kringluna með Carmen og versla mér bjór fyrir kvöldið. Jú og eins og eina rauðvínsflösku til að gefa í afmælisgjöf (Komst svo að því að hún drekkur ekki rauðvín. Good job Addi!). Við Carmen fórum svo í mat til Beritar og hengum þar e-ð fram á kvöld eða þar til að ég þurfti að fara heim. Í mat… gott að borða mahr. Það kom svo fólk í mat til Sigga (myndi segja okkar ef ég hefði tekið einhvern þátt í öðru en að éta bara) og við sötruðum bjór í smá tíma heima. Svo nöldraði ég Elmar og frú til að koma með mér í afmælispartíið sem mér var boðið í um kvöldið. Og viti menn, haldiði að Berit hafi ekki reddað sér pössun líka og ákvað að skella sér með okkur út. Good stuff! Við fórum í afmælispartí til Ólínu beib og hittum þar fyrir…… mjög……… dökklitað fólk. Verð að kaupa mér ljósakort áður en ég mæti. Og svo var soldið um þrútna vöðva og dæmi í gangi þarna. Og ég eins beefy og ég er þá féll ég bara beint inn í hópinn *hóstástæðanfyrirþvíaðégdróElmarogFrúþangaðsko*. Þarna sátum við og spjölluðum í smá tíma meðan við sötruðum bjór, bollu og tókum einhver hlaup skot. Við “aðkomupakkið” spjölluðum aðallega við hvort annað þar sem það var ekki að sjá eða að heyra að við áttum heima þarna á einhvern hátt anyway. Sem að kom svo bersýnilega í ljós þegar að Ólína spurði mig þegar að við vorum að fara niður í bæ hvort við færum ekki með á Hverfisbarinn, við værum jú komin á gestalista. Ég svona “jaaaaaa….. ég veit ekki. Sjáum alveg til allavega. Ræði þetta við þau” og heyri þá eina ofurljóskuna hreyta í mig “Heh já eða þá á Kaffi Austurstræti bara” at which point þá brosti ég og kvaddi ólínu. Needless to say þá fórum við ekki á hverfisbarinn. Fórum á Ara í Ögri (sem virðist vera voða vinsælt hjá austfirðingum e-ð) drukkum smá þar í góðum félagsskap Valda nokkurs Hafdal og vina. Svo um svona……. 3 eða e-ð þá ætluðu Elmar og frú (sem allir vita að heitir Steffi sko. En það er bara svo gaman að skrifa frú
) að fara heim. Ég sá ekki fram á að nenna að redda mér fari eða einverju rugli seinna um nóttina/morguninn svo ég fékk bara far heim til mín. Berit enn að gera grín af því hvað ég er lélegur að fara svona snemma 
Sunnudagur: Þynnkudeit með Carmen og Berit heima hjá Berit. Góðir sófar mahr. Vorum useless í allan dag og hengum bara. Ég beilaði óvart á frænku minni sem að er stödd hér á landi í smá tíma og þarf að bæta það upp á morgun or sum. Allavega, all in all góð helgi fólk. Takk fyrir mig þið sem að komuð að henni
Posted by Addi as Rugl at 10:16 PM UTC
1 Comment »
Þúst……….. klukkan er ekki orðin 9!!!!!! Ég bara skil ekki sunnudaga stundum.
Posted by Addi as Rugl at 8:46 AM UTC
5 Comments »
Mér finnst að Sunneva (fyrrverandi or sumfin) hans Sigga ætti að leggja fyrir sig söng. Þessi manneskja er með sterka rödd. Nótt númer…….. 12 eða e-ð sem ég vakna við hana. Hvað sem Siggi er að gera þá er hann rosalega góður í því
Posted by Addi as Rugl at 4:00 PM UTC
3 Comments »
Það er rosalega gaman stundum að heyra hvernig manneskja talar um mann við fólk sem að kemur mitt private líf ekkert við…. Sérstaklega þar sem að maður hefur verið eini sem að hefur hingað til tekið upp hanskan fyrir þá manneskju þegar að einhver setur út á hana, talar illa um hana eða gerir grín að henni að henni fjarstaddri. En jæja, ég mátti svosem búast við því að fólk væri samt við sig. Og því læt ég þetta ekki pirra mig mikið. Bara smá svona í 20 mín í dag en ekki lengur því að það er föstudagur, ég á bjór
og þessi manneskja er bara svona. Ekkert við því að gera.
Posted by Addi as Rugl at 6:24 PM UTC
No Comments »
Stundum er rosalega auðvelt að angra mig og gera mig reiðann. Stundum þarf bara smá setningu eða afskipti sem að mér finnst ekki eiga rétt á sér. Og þegar ég verð ringlaður, eins og eftir mismunandi sögur af einhverjum hlut, þá á ég það til að verða bara meira reiður. Og þegar mér finnst e-ð gert á minn hlut þá verð ég oftast mjög mjög grimmur gagnvart viðkomandi. Sama hver það er. Þá segi ég hluti sem að ég segi eingöngu til að særa. Ekki til að láta mér líða neitt betur eins og sumir vitleysingar halda sem að vita ekkert um mig og þekkja ekkert til mín eða málsins. Heldur til þess að urra á móti og vera vondur við þann sem að mér fannst beita mig ranglæti eða hafa mig fyrir rangri sök. Já og svo ekki sé minnst á þegar að það kemur einhver utanaðkomandi sem kemur þessu ENN minna við og skiptir sér af og fer að drulla yfir mann líka þá er það ekki til að bæta ástandið gagnvart manneskjunni sem að ég var á annað borð reiður út í heldur bara til að bæta skít ofan á þetta allt og gera mig reiðari.
Af hverju get ég ekki bara gleymt öllu og látið eins og ekkert sé stundum? Því að oft þá koma fram hlutir sem að virðist bara ætlaðir til að særa mann og hlutir sagðir sem að maður gat ekki ímyndað sér að einhver myndi virkilega halda um mann eru sagðir.
Þegar að öllu er á botnin hvolft þá er ég hörundsár, skapstyggur og á erfitt með að gleyma hlutum bara. Þrátt fyrir það að mig langi til þess mest af öllu….
Posted by Addi as Rugl at 10:33 PM UTC
3 Comments »
stórt fkn æi……
Posted by Addi as Rugl at 10:11 PM UTC
No Comments »
Hvað er næst? Senda handrukkara heim til mín til að skamma mig? Get a life….
Posted by Addi as Rugl at 8:51 PM UTC
No Comments »
Bjána sími… þegar að ég var að bíða þennan klukkutíma sem ég beið inni á Billiard Barnum (sætin mahr) eftir leiknum þá fór ég að fikta í símanum mínum. Fór að taka til og svona og stroka út óþarfa nr. Nú svo eru þarna einhver 4-5 númer sem að eru saved á símann en ekki kortið. Ég vildi auðvitað ekki hafa það og ákvað að færa þau yfir. Vel þarna “Copy to Sim”, “Copy all” og allt í góðu. Nema síminn spyr mig hvort ég vilji þá “Overwrite” og ég bara “Well duh. Er ekki að fara að hafa þetta á símanum og í kortinu. Svo ég vel “yes”……. þá kemur “Overwriting” og það er bara þarna í langan tíma sko. Svo loksins mætir Elmar og ég heilsa honum, sé að síminn er búinn og bara gapi af undrun. Sýni svo Elmari hvað síminn minn var að gera. Jú þá formataði hann bara SIM kortið mitt, straujaði það sko. EN hélt þessum 4-5 númerum inni. Svo að ef ég hringi ekki í þig lengur þá er það því að ég er ekki með símann hjá þér. Missti öll númerin mín. Nema auðvitað hjá uppáhalds pakkinu því að ég man þau. Svo að ef þú vilt vera hluti af þessari annars stuttu símaskrá sem ég hef núna þá verðurðu að senda mér sms. Annars skaltu ekki velta fyrir þér af hverju ég hringi ekki lengur 
Addi “User Friendly”
Posted by Addi as Rugl at 6:33 PM UTC
No Comments »
Mig langar að hitta alla kallana úr kaffiskúrunum á þessum stöðum sem að ég hef unnið á undanfarið á morgun. Bara til að geta sungið “You’ll never walk alone” fyrir þá. Með svona “Fuck you then” glott á smettinu eftir á 
Til Hamingju allir Poolarar
Posted by Addi as Rugl at 10:39 PM UTC
4 Comments »
Mikið óskaplega var þetta fínn sunnudagur. Bara rosalega góður í alla staði verð ég að segja. Vaknaði furðu snemma og gat ekki sofnað aftur og ákvað því að bíða í smá tíma og dreifa svo þjáningum mínum og vekja fólk sem að ætlaði að liggja í þynnku og draga með mér út
Fór semsagt til Beritar og pikkaði hana upp, pikkaði Carmen upp og við fórum á Kentucky í þynnkumat. Þar var allt ísland samankomið að borða. Sjitt hvað það var pakkað! En svo var tekinn einhver smá rúntur ásamt því að pikka Tanna Djöful upp og henda honum í flug til að hann gæti fært mér fisk þegar hann kemur í land næst
Svo fórum við heim til Beritar að slappa af í sófum og röfla um… allskonar röfl. Og haldiði ekki að Jennýin hafi bara reddað þessu öllu með að koma með ís handa mér líka. Roooooooosa góður dagur bara. Var að koma heim og er að spá í að gera þetta bara að hefð. Ræsa fólk og ryðjast inn á heimilið og hertaka stærsta sófann
Posted by Addi as Rugl at 10:33 PM UTC
7 Comments »
Djös argasta….. Kíkti í heimsókn til Rebekku í smá stund í gær þar sem að var metall á fóninum og aðeins meiri metall. Gamlir og góðir sem að maður þekkir. Festist í hausnum á mér!!! Svo núna vantar mig FKN METAL! GODDAMN!
Posted by Addi as Rugl at 12:39 PM UTC
5 Comments »
Er ég að springa úr hamingju svona í morgunsárið eftir að hafa verið að fletta mbl.is og séð það að ísland komst EKKI áfram í Euro? Ó FKN HELL YEAH I AM! Euro viðbjóður er búinn þetta árið fyrir okkur semsagt. Þvílík gleði að þetta stóð svona stutt yfir. If you ask me þá var ekkert eitt að þessu hjá þeim. Þetta var bara……. selma…. lagið…. og lát oss ekki gleyma VIÐBJÓÐS FÖTUNUM sem að þeir klesstu framan á fréttablaðið mitt í gær.
Takk fyrir mig!
Posted by Addi as Rugl at 7:39 AM UTC
4 Comments »
Mikið óskaplega er gott að vakna við ruslabílinn á milljón fyrir utan gluggann hjá sér á morgnana. Og það svona snemma (eða um 06:55). Voða fínt. Get fengið mér helling að éta áður en að ég fer í vinnuna. (Sko hver segir svo að ég horfi ekki á björtu hliðarnar
)
Posted by Addi as Rugl at 7:31 AM UTC
No Comments »
Nóg af þeim alltaf.
Eða þúst….. nei!
Hvað á ég að segja? “Í dag var ég að múra…. það var gaman”
addi 5 ára…..
Posted by Addi as Rugl at 6:59 PM UTC
3 Comments »
Ofninn er ennþá bilaður og það voru svo mikil læti í gardínunum í nótt, sökum þess að glugginn er opinn alveg eins og hann fkn getur verið og það er samt ekki nóg, að uppáhalds bollinn minn (sem Siggi á reyndar…. damn) sópaðist úr glugganum og niður á gólf….. How much fun is THAT! Ljóta nótt. Var ekki að springa úr hamingju í allan dag.
Posted by Addi as Rugl at 10:39 PM UTC
1 Comment »
Mig vantar pípara til að laga þennan ofn sem er fastur í botni í herberginu mínu og lækni til að skoða hvort það sé glerbrot í hálsinum á mér því ég er að deyja úr hita og fékk kók með glerbrotum í þegar ég fór á kaffihús að éta með tanna djöful. Og mér er fkn illt í hálsinum þegar ég er að drekka eða éta e-ð…… andsk!
Posted by Addi as Rugl at 12:33 AM UTC
No Comments »
So yeah…………………….
that helped……
æi CRAP!
Posted by Addi as Rugl at 11:17 PM UTC
No Comments »
software for service wordpress stats