Bölvað! Tanni Djöfull sagði mér að fara á Hot or not og finna myndina sem að einhver stelpa sem hann þekkir setti inn af sér (af Tanna sko) . Eftir að hafa farið þangað inn og browsað einhverja 20 flaming gayh lookin’ gaura í leit að Tannálfinum þá hef ég gefist upp. Svo þetta er allt í ykkar höndum! Finnið Tannpínu og sendið mér linkinn. Fundarlaun í boði. Þúst….. einn bjór eða e-ð. kanski… ef ég drekk hann ekki bara sjálfur. Sé Tanna hvort eð er oft…. ÆI FINNIÐ HANN BARA! (Þeir sem ekki vita hvernig Tanni Djöfull lítur út þá er hann gaurinn með mér á Trillukallamyndunum sem eru í mynda albúminu (undir myndir hérna hægra megin trega fólk) Eva Dís (nafnið á bátnum. Ég mátti ekki skýra hann “Djös Druslan…))
Posted by Addi as Rugl at 9:06 PM UTC
No Comments »
Svona á að taka á þessu bölvaða pakki
Posted by Addi as Rugl at 7:31 PM UTC
No Comments »
Matur er mannsins megin. En ekki konunnar. Því að þær éta nú aldrei neitt af ráði. Sem að er gott fyrir mig. Meira fyrir mig sko. Já nema Elísan sem að er “Junkfood Drottningin” audda. Hún er víst botnlaus líka og dýr í rekstri. Hvað annað er hægt að segja um manneskju sem að þarf að éta 2 kebab þegar að hún fer heim af djamminu? Þúst ég ét stundum einn. Og má helst ekki vita af því daginn eftir því þá fæ ég í magann. Djös viðbjóður þessir Kebabs. Nema þegar að ég er draugfullur. Þá er þetta best í heimi. “CMOT Dibblers Pie” anyone?
Posted by Addi as Rugl at 7:21 PM UTC
3 Comments »
Vissuð þið að það má redda ýmsu rugli með spældu eggi. Svona eins og viðbjóðs “BBQ Beikonborgararnir” (rarar….. var ekki að ná að hætta þarna..) sem að eru á einhverju tilboði í krónunni (því að þetta er jú ógeð) fyrir ekki svo mikinn pening eru bara nokkuð góðir með spældu eggi. Ain’t that some shit
Og jájá ég veit ég keypti þetta. En þúst….. þetta var ódýrt og ég var búinn að éta yfir mig af skyri anyway. En! The moral of this oh so pointless story is “Egg eru semsagt bara brilliant” 
Bon Appetite
Posted by Addi as Rugl at 7:17 PM UTC
No Comments »
Mig vantar að fara að æfa aftur…… strax…… Need something to hit…..
Posted by Addi as Rugl at 9:51 PM UTC
No Comments »
Ég las færslu hjá vini mínum sem að svona fékk mann aðeins til að hugsa. Hann var að spá hverjir væru vinir og hverjir væru bara vinir þegar þeir þyrftu á einhverju að halda. Ég vil nú telja mig sem vin hans þó svo að ég hafi bara lítið sem ekkert samband. Nema ég væli stundum í honum þegar mig vantar drasl. Sem að gerir mig eflaust einn af þessum sem að hann er með efasemdir um. En ég er líka svona týpa sem að er ekkert alltaf í stöðugu sambandi við vini mína alla daga. Þar má nefna sem dæmi góðvin minn hann Rúber. Ég er roooooooosalega lélegur í að spjalla við drenginn. Svona 3 setningar í einu í þessi 2 skipti á mán eða e-ð sem ég tala við hann á msn. En hann er samt rosalega góður vinur minn og mér er ekkert sama um drenginn. Ég er bara ömurlegur í að halda sambandi við fólkið mitt. Elmar er eflaust sá maður sem að ég hef hvað mesta sambandið við. Og það er svona…. jaaaa ekki svo mikið. Nema þegar á að fara að spila eða e-ð. Jú og ef mig vantar símakall
En hann hefur líka alveg samband við mig ef að honum vantar….. svona …. jah handyman bara. Ein besta vinkona mín sem að ég aldist liggur við upp með er líka voðalega skilningsrík á þetta hjá mér. Hún kippir sér ekkert upp við það að ég hringi kanski í hana eftir 2 ára þögn og segist vera í nágrenninu og hún þurfi að hella upp á kaffi þar sem ég er að fara að kíkja í heimsókn. Það kom meira að segja eitt stykki barn í heiminn í einhverri pásunni. Svo kom ég bara í heimsókn og “Hey. Look at that. þú átt barn. Sem að er ekki alveg nýfætt. Man we stay in touch
“. En svona er ég bara. Og hún er ekkert að stressa sig á þessu og spáir ekkert í þetta. Ég er líka svona við familíu meira að segja. Er hrikalega lélegur í að vera í bandi. Og er oft skammaður fyrir það líka. Sorry Bjarki. Skal reyna að laga þetta
En ekki taka þetta nærri ykkur. Sum ykkar eigið þetta skilið! (hehehe) en fæst ykkar samt. No worries fólk. Mér þykir enn væ…. vó…. ok við skulum ekki vera væmin. No worries. Mér er ekkert alveg skítsama um ykkur
Posted by Addi as Rugl at 9:45 PM UTC
7 Comments »
Það er bara ekki alltaf sólskin. Það er ekkert mega mál neitt. Shit happens. Fólk þarf ekki að hafa neinar áhyggjur þó að það fjúki í mann sökum smá óþarfa kjaftæði sem að er beint að manni. Kemur fyrir…. jah flest alla. Sumir eru voðalega ónæmir fyrir þessu. Me? Not so much. En þetta er e-ð sem að líður hjá. Ég hef allavega ekki hugsað neitt um þetta af ráði í dag svo að þetta er ekki hlutur sem að kemur til með að pirra mig í neinn tíma. Just…. temporary burst of anger. Og svo búið
Posted by Addi as Rugl at 9:35 PM UTC
No Comments »
Not so happy færslan. Núna fer ég bara að verða reiður…. var pirraður, jafnvel smá sár en er núna að snúast yfir í reiði. Þegar að fólk hagar sér eins og það hafi einhverja helvítis fjarstýringu á mann og getur ekki talað hreint út við mann heldur segir eitt og meinar e-ð þvert á móti og ætlast til að maður geti túlkað allt kjaftæðið sem að maður heyrir. Maður fær kanski setningu eins og “Vertu bara þú sjálfur og ekkert vera að breytast fyrir fólk.” og á semsagt að skilja hana sem “Vertu þú sjálfur svona rétt á meðan það hentar og svo skaltu breytast þegar mér hentar.”. Svo er það líka þegar að fólk ákveður e-ð og ber það undir mann og maður samþykkir það og þá er maður víst fífl og ég veit ekki hvað. Svo er það fjarstýringin. Þegar að það á að vera nóg að segja e-ð og maður á bara að gjörbreytast í hugsannahætti, framkomu og öllum tilfinningum. Ég ætlast aldrei til þess af fólki að það gert það í minn garð svo að það á ekki að vera að ætlast til þess af mér. Ég fer ekki að breytast og ljúga að sjálfum mér og spila einhvern leik bara til að hafa aðra ánægða. Það gerist bara ekki. Ég hef gert það áður og mun aldrei gera aftur. Ef það á að vera með skítkast út í mig og hinar ýmsu hótannir fyrir það þá verður það bara að hafa það. En ég hef ekkert að gera við svoleiðis fólk í mínu lífi sem að hagar sér þannig. Svo einfalt er það. Á nógu mikið af vandamálum sjálfur til að díla við þó að ég fari ekki að bæta fleirum við.
pissed Addinn
Posted by Addi as Rugl at 11:13 PM UTC
1 Comment »
Ég var að skoða msn’ið mitt núna eins og ég á til að gera þegar að mér leiðist seint á kvöldin og hef ekkert betra að gera og ég er með allt of mikið af fólki á þessu drasli sem að ég tala aldrei við. Og fólk sem að talar kanski við mann á svona….. jah nokkra mán fresti. Já og fólk sem ég veit ekki einu sinni hvað er að gera þarna. Vinkonur vinkvenna og hitt og þetta pakk sem að maður bætti bara við til að senda e-ð eða fá e-ð sent frá. Já og svo pakk sem að hefur bætt manni á listann sinn en talar aldrei við mann. Finnst þetta weird. Ætti að skella mér í tiltekt á næstunni og henda fólki alveg vilt og galið. Svona eins og ég gerði þegar ég formataði símann minn óvart og týndi öllum. Það er bara…… jah nokkuð þægilegt, enda var ég með alveg HAUG af fólki sem ég tala aldrei við þar líka. Verst að ég horfði á nokkur nr og hugsaði “Hey langt síðan að ég hef hringt í hann/hana. Spurning um að bjalla á eftir” og svo bara “Hmmm not so much. Allt farið”.
En já! Tiltekt coming up
Posted by Addi as Rugl at 10:32 PM UTC
2 Comments »
Þið eruð nú lélegu commentararnir var að skoða teljarann minn og það er bara fkn haugur af heimsóknum í dag og ekki eitt comment. Ekki það að mér detti í hug hvað er hægt að commenta á svona tilgangslausa færslu. En þúst samt, ekkert verið að kvitta fyrir komuna. Lélegt bara *hnuss*
Posted by Addi as Rugl at 10:12 PM UTC
3 Comments »
Fín helgi mahr. Allt í rólegheitunum bara og ekki einn bjór alla helgina
Föstudagskvöldið fór bara í að slappa af hérna heima og sofa tiltölulega snemma fyrir vinnu á lördag. Laugardagurinn var bara heví fínn líka. Fór út í Hafnarfjörð að vinna um morguninn bara ég og mp3 spilarinn minn. Mjög mjög gott. Góð tónlist og ekkert vesen. Fór svo um kvöldið heim til Iðunnar að spila eitt spil af popppunkti. Strákar (Ég og Elmar) á móti stelpum (aðallega Iðunn
) og much to my dismay þá töpuðum við. Sko…. bara a plague on both our houses og ég veit ekki hvað. Eða nei nei. Við skulum nú ekki óska eftir neinni plágu. Sigginn er veikur eins og er og það er alveg nóg. Anywho… svo rennur upp sunnudagsmorgun (like áðan sko) og ég fer aftur út í hafnarfjörð að vinna með Chemical Bros, Roni Size, Cypress Hill og svo Velvet Revolver til að brjóta smá upp. Var að koma heim, er að borða skyr, er EKKI þunnur og held að þetta dæmist bara sem fín helgi svona þegar upp er staðið. Svo er það bara vinna á morgun
Posted by Addi as Rugl at 2:39 PM UTC
No Comments »
Ég er að spá í að linka bara beint á myndasíðuna hennar Iðunnar þar sem að ég tók myndirnar þar líka og er að senda henni myndir af gærkvöldinu 
Hún reddaressu
Dúndurfréttamyndir Hérna!
Posted by Addi as Rugl at 11:02 PM UTC
No Comments »
Af einhverjum ástæðum vil myndasíðan mín ekki leifa mér að uppload’a myndum eins og er. Ég redda þessu við fyrsta tækifæri og skelli þeim síðan inn. (semsagt væli í Sævari og hann reddar öllu. Eins og venjulega
)
Posted by Addi as Rugl at 10:26 PM UTC
No Comments »
Það hvín í eyrunum á mér. Skrifa meira á morgun og set inn haug af myndum
Posted by Addi as Rugl at 1:41 AM UTC
No Comments »
Fór á Dúndurfréttir (púnktur bloggggspott púnktur komm.) í gærkvöldi og þvílíka helv snilldin. Sagði Össaranum (Sjá Fúskarann hérna hægra meginn) að drífa sig í kvöld því að ég færi aftur. Haldiði að drengurinn fái ekki bara boðsmiða á þetta í gegn um X-fm. Að sjálfsögðu var ég appelsínugulur af öfund og reyndi eins og mófó að hringja inn. En nei. Náði í gegn en það skelltist strax á aftur. Bölvað vesen. EN svo segir Össarinn mér að hringja aftur seinna þar sem að það var verið að gefa e-ð Hróarskeldu drasl og dæmi. Ég geri það. Næ inn og spyr gaurinn. Hann kannast ekkert við það (Össarinn að ljúga mig fullan eða e-ð með útvarpið á hausnum) svo ég segi honum að það sé náttúrulega argasti dónaskapur að skella á mann þegar að maður nær loks í gegn fyrir fkn miða á Dúndur. Gaurinn kannaðist heldur ekkert við að dúndurfréttir væru að spila (þúst náði ég í húsvörðinn eða e-ð?) en ég vissi að X-fm væru með gestalista þar sem það var í gangi í gærkvöldi líka og sagði honum að finna endilega þennan lista sem fyrst. Hann lofaðist til að bæta mér á hann og færi beint í að finna hann. Good stuff
Ég er semsagt að fara AFTUR á Dúndurfréttir í kvöld. Hvað get ég sagt? Fæ ekki nóg af þessu. Sem betur fer þekkja þeir mig ekki aftur sökum hársíddar eða e-ð álíka því að annars myndi Pétur rukka mig um lagið sem að ég skulda þeim. Þeir tóku nefnilega “Comfortably Numb” (lagið mitt sko) fyrir mig áður en að ég fór út og sögðu síðan að ef þeir sæu mig aftur þá skildi ég skila laginu
Slapp við það í gær svo að við vonum það besta í kvöld líka. Allavega! Drullist á Gaukinn í kvöld klukkan 21:00. Bara snilld þessir menn. Já og Pétur Ben líka (Mugifriend or sum) sem að hitar upp fyrir þá. Argasti gítarsnillingur sko.
Sjáumst!
Posted by Addi as Rugl at 7:27 PM UTC
No Comments »
Jæja…. þá vantar mig annað hobbí eða e-ð að gera á kvöldin. Djöfulinn ætti maður að taka sér fyrir hendur? Koma sér í form? Læra að spila á helv gítarinn? Eða hvaaað? Ég nenni hvorugu e-ð. Er voðalega latur eftir vinnu undanfarið. Spurning hvort maður þurfi ekki bara smá change of lifestyle. Það er eflaust málið. Áður en að vikan er liðin ætla ég að hafa breytt allavega einum stórum hlut í lífi mínu þessa dagana. Núna er bara að ákveða hvaða helv hlutur það er.
*Puts on the thinkin hat*
Posted by Addi as Rugl at 10:34 PM UTC
3 Comments »
Ég var að komast að því að geislaspilarinn í bílnum mínum er meira kúl en ég hélt. Ekki nóg með að spilarinn spili mp3/wma diska og sé með USB porti fyrir mp3 spilarann minn heldur get ég líka tekið upp útvarpið á hann ef ég er með usb minnislykil eða mp3 spilarann minn tengdann við hann. Merkilegur andsk! Þá veit ég loksins hvað þessi litli rauði “rec” takki stendur fyrir
Posted by Addi as Rugl at 8:44 PM UTC
No Comments »
Svona miðað við viðbrögð sem ég fékk í gegn um síma m.a. þá verð ég að taka fram að ég er ekki með e-ð grudge út í neinn sem að les þetta kjaftæði. Þetta var bara pæling í gær eftir samtal og umræðu um hvað ég væri nú fkn langrækinn
Chill out fólk
Posted by Addi as Rugl at 7:35 PM UTC
No Comments »
Stundum furða ég mig á því hvernig sumir hlutir geta þvælst um hausinn á manni án þess að það sé nokkur ástæða fyrir því. Jafnvel svo árum skiptir. Hlutir sem að skipta mig engu máli lengur. En eru samt að pikka í mann af og til. Ég ræddi akkurat eitt við vinkonu mína um daginn sem að er akkurat andstæðan við mig. Ég er alveg langræknasti fjandi sem að þú gætir mögulega kynnst en hún er of gjörn á að fyrirgefa fólki. Smá andstæður þarna
Ég hef alveg séð þennan galla í mér og reynt að laga þetta stundum en það virðist bara ekki alveg vera að virka stundum. Oft þarf ekki nema e-ð smá mál til að mér sé illa við einhvern for life. Hef lent í þessu með vinnufélaga á sjónum og á fleiri stöðum. Smá mál kemur upp á og er svo leyst bara á staðnum en bara slæm framkoma er oftast nóg til að ég taki viðkomandi aldrei aftur í sátt. Þrátt fyrir að ég gæti alveg unnið með honum í nokkur ár án þess að þetta kæmi niður á vinnunni. Hef meira að segja lent í því að djamma, borða og gera allan andsk með fólki sem mér er verulega illa við bara fyrir það að það er í sama vinahóp og ég. En svo virðist sem að ég geti ekki verið langrækinn við sumt fólk. En það eru ekki fleiri en svo að ég tel þau á fingrum annarar handar. Stundum finnst mér eins og ég ætti að hafa e-ð grudge á viðkomandi en það bara virðist ekki vera til staðar. Það er alveg jafn furðulegt eins og fólkið sem að ég er með e-ð grudge gagnvart fyrir litla sem enga ástæðu. Merkilegt að maður sé stundum svo óskiljanlegur að maður nær ekki upp í það sjálfur
En að sjálfsögðu þá er þetta bara e-ð sem að maður þarf að reyna að drullast til að vinna betur í þar sem að mér finnst hundleiðinlegt að vera illa við einhvern sem að hefur ekki gert mér e-ð brjálað alvarlegt. Drama? Nah ekki svo mikið, bara pælingar held ég. Þó mér sýnist á sumu að það sé alveg verið að reyna að draga mann í einhvern dramapakka og rugl sem að ég bara nenni ekki að pæla í núna því að ég hef það fínt og ætla ekki að fara að standa í einhverju bölvuðu rugli sem að pirrar mann. Lífið er allt og þægilegt þessa dagana til að maður fari að pirra sig á hlutum…. að undanskilinni fólki í umferðinni sem á ekki heima þar
Posted by Addi as Rugl at 8:41 PM UTC
No Comments »
Ójá pakk. Gærkvöldið var heví rólegt. En samt ekkert “dull”. Ég sótti Tanna Djöful og við fórum heim til Beritar þar sem planið var að grilla með einhverju pakki. Og þvílíkt góða pakkið sem að mætti á svæðið bara. Ég, Tanni, Berit, Carmen, Elísa (& son), Ásta, manekkihvaðhúnheitirsemstoppaðistutt og Jenný (sem mætti með alveg hrikalega sniðugt afkvæmi sitt sem að var voða fyndin og hélt okkur Tanna djö hlæjandi allt kvöldið
). Grey Tanni var auvitað rosalega smeikur við þetta allt saman í byrjun þar sem að þetta eru allt einstæðar mömmur og alles (voru 2 aðrir strákar á leiðinni með okkur sem að beiluðu svo sökum anna). En með matnum og bjórnum þá náði hann að slappa af
Humar í forrétt og svo Sólkoli og lambakjöt og salat and stuff og bara heví fínt. Eftir þetta ákváðu nokkrar að fara út í ísbúð að sækja sér ís og auðvitað voru þær sendar með pöntun fyrir allt liðið og allir út troðnir af mat og ís. Þá var að sjálfsögðu bara fyndið að horfa yfir stofuna þar sem að allir voru bara afvelta af mat og voða voða chilled á því. Smám saman tíndist fólkið svo út fram eftir kvöldi og nóttu og við enduðum á því að sitja þarna 4 bara og spjalla fram undir 3 or sum. En þá var Tanna og Berit nóg boðið og þau foru niður í bæ (enda hefði ég aldrei trúað öðru upp á þau sko) og fóru á e-ð djamm. Ég var búinn að hafa það nógu gott þetta kvöld og orðinn allt of afslappaður til að fara niður í bæ svo ég fór bara heim að sofa eftir að hafa skutlað þeim. Og í dag er laugardagur….. furðulegar þessar löngu helgar…. það er heill sunnudagur eftir! Úfffffff what to do, what to do…… Oh well, finnum e-ð sniðugt úr því bara!
Posted by Addi as Rugl at 12:42 PM UTC
No Comments »
software for service wordpress stats