Skip to main content.
29. Apr 2006

*STEEEEEEEEEEL*!!!!!!!!!

Reyndar fékk Sævar þetta af embéllpúnkturisssss að hans sögn. Samt þjófnaður.
Ég fann mig knúinn til að nappa þessu af síðunni hans þar sem að mér fannst þetta bara viðbjóðs fyndið!
Skemmtilegasta stjörnuspá sem ég hef lesið allavega ;)

Hrútur (20. mars – 20. apríl): Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti, góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp og láta aðra þrífa upp skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og slá tilgangslaus högg útí loftið. Þú ert kvikindi, en það hjálpar hversu einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.

Naut (20. apríl – 21. maí): Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi eru það eina sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.

Tvíburi (21. maí – 20. júní): Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað, með hundrað ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við. Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og óþarfa.

Krabbi (21. júní – 23. júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og sjálfsvorkunnsamur.

Ljón (22. júlí – 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.

Meyja (23. ágúst – 23. september): Þú ert einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.

Vog (23. september – 22. október): Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.

Sporðdreki (23. október – 21. nóvember): Þú ert frekur og valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.

Bogmaður (22. nóvember – 21. desember): Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kannt ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.

Steingeit (21. desember – 20. janúar): Þú ert stífur og vansæll vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum, alltaf að skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir stöðutákn, enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum og merkjavöru.

Vatnsberi (20. janúar – 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.

Fiskur (19. febrúar – 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.

Posted by Addi as Rugl at 8:13 PM UTC

7 Comments »

16. Apr 2006

Comment

Ég er hættur að reyna að commenta hjá Tinnunni þar sem að þessi HELVÍTIS STAÐFESTINGARKÓÐI ER GALLAÐ RUSL. Ég hef marg oft reynt að commenta og ég bara gefst upp. Fæ ekkert nema “Villa í staðfestingarkóða” Núna áðan reyndi ég 9 sinnum að commenta. Ég er ekki það blindur að ég geti ekki lesið stafi og pikkað það inn í sömu röð. Hef meira að segja beðið um annað álit þegar ég hef slegið inn þennan kóða. From now on þá commenta ég ekki á blog.central.is síður út af þessu rusli. of mikið vesen.

Þeink jú end gúddbæ!

Posted by Addi as Rugl at 11:47 PM UTC

2 Comments »

Vinnuplanið

Skoh. Þar sem að hitt og þetta fólk hefur verið að reyna að ná í mig undanfarið og að draga mig í að gera hitt og þetta þá hef ég ákveðið að setja bara vinnuplanið mitt hérna upp. Það er svona fram að 15 maí þar sem að það er handónýtur einstaklingur að kokka á móti mér sem að getur ekki verið einn á staðnum þar sem að hann er svipað góður kokkur og fiskar eru í listdansi á skautum.

Mán:    10:00 – 00:00
Þri:      10:00 – 00:00
Mið:     10:00 – 00:00
Fim:     10:00 – 00:00
Fös:     10:00 – 17:00

Lau og Sun frí.

The End.

Posted by Addi as Rugl at 11:22 PM UTC

1 Comment »

Skoh!

Búinn að laga linkinn þinn maja. Svona um leið og ég fattaði að það var addressan sem var vitlaus hjá mér en ekki að síðan þín væri niðri :P

Posted by Addi as Rugl at 2:03 PM UTC

2 Comments »

09. Apr 2006

*mun*

Hver í andsk var aftur að leita að einhverju með Skrýplunum um daginn. Ég var að kaupa plötu með þeim nebbbblea :P Fór í portið og verslaði mér Dire Straits og sá þessa á 100 kall. Now to remember who needed it…..
Varst það ÞÚ Róbjoð?

Posted by Addi as Rugl at 4:11 PM UTC

1 Comment »

01. Apr 2006

hehehehe

sá þetta hjá majunni. Bara fyndið

Take this quiz at QuizGalaxy.com

Posted by Addi as Rugl at 12:58 AM UTC

1 Comment »

  
software for service wordpress stats