Skip to main content.
13. Dec 2006

Bandaríkjamenn reyna að drepa niður orðróm um byssugleði og heimsku.

Blindir fái skotleyfi

Blindir bætast innan skamms í fjölmennan hóp veiðimanna í Texas ef nýtt frumvarp um veiðiréttindi þeirra verður að lögum. Felur hið óvenjulega frumvarp í sér, að blindum veiðimönnum verði heimilt að beita svokallaðri „laser-sjón” við veiðarnar, hjálparbúnaði sem þeim sjáandi er nú bannað að nota.

Blindum verður engu að síður gert að hafa með sér fylgdarmann, sem hefur fulla sjón, á veiðunum. Er honum ætlað að tilgreina blindum um hversu marga þumlunga þeir þurfi að hreyfa skotvopnið til að hitta bráðina.

Ekki fylgdi sögunni hvort Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, hefði áhuga á slíku starfi þegar hann hverfur af vettvangi stjórnmálanna, en hann skaut sem kunnugt er veiðifélaga sinn óvart í andlitið og bringuna með haglabyssu við kornhænuveiðar í Texas fyrr á árinu.

(tekið af mbl.is)

Posted by Addi as Rugl at 2:54 PM UTC

1 Comment »

09. Dec 2006

Blogg’ette

Það var keyrt á bílinn minn…. Djöfull….

Það sem angraði mig meira var að það var rosalega sæt stelpa. Og mér leið illa yfir því. En sætti mig við það að hún hafi keyrt á bílinn minn þar sem að hún var með rosalega stórum myndarlegum gaur sem ég mun áætla að hafi verið kærastinn hennar. Mér finnst það bæði fyndið, brenglað og afskaplega súrt. :D

Nött…..

Posted by Addi as Rugl at 8:37 PM UTC

4 Comments »

07. Dec 2006

Waking up…

Já góðan daginn. Long tæm no pikk on ðe síð.

Ekki mikið að gerast hérna megin svo ég hef ekkert verið að tjá mig um viðburðaleysið :P
En ég fór í mat til múttu um daginn á thanksgiving og fékk mér ofvaxna hænu (kalkún) og haug af dóti með. Svo fór ég 2 dögum seinna á jólahlaðborð með vinnunni á Grand Hótel. Svo það var semsagt nóg af gera í áti þessa vikuna. Grand vs. Mútta: Mútta vann 3-1 sko. Enda fékk ég líka smá left-overs með mér heim :D
Flemming flytur út upp úr áramótum þar sem að unnusta hans er að koma til landsins þá. Þá hafa Elmar og Steffi tekið upp á því að flytja inn meðleigjanda handa mér frá Þýskalandi. Vinkona Steffi er að koma til landsins og að fara að vinna hjá Epal eins og Steffi. Hún ætlar þá að taka við herberginu sem að Fliðbert var í svo ég þarf allavega ekki að leita að meðleigjanda í bili. Sem er ekkert nema tóm gleði. Fátt jafn leiðinlegt. Skólinn fer að klárast um það leyti og þá tekur við atvinnuleit sem að býður upp á vinnu við það sem ég var að læra ef ég verð ekki búinn að fá vinnu þegar að því kemur.  Don’t get me wrong, ég er enn í sömu vinnunni en ég er ekki að spandera 350 þús í þetta nám til að vinna svo ekki við það :P   Svo komst ég að því að það er kannski alveg spurning um að sökkva sér í námstengdar skuldir þar sem ég hef komið auga á fleira sem mig langar að læra í þessum geira. Semsagt mig langar í MCSE og svo að læra forritun líka. Spurning um að taka það með vinnu bara á næstunni held ég. Eina sem vefst fyrir mér er….. hvað á ég svo að gera?? En það hlýtur að koma í ljós. En allavega…. ég nenni ekki að skrifa hérna inn núna.
Bugger the lot of ya!
Hálfsofandi Gerpið…

Posted by Addi as Rugl at 4:35 PM UTC

3 Comments »

  
software for service wordpress stats