Jammmm. Það verð ég. Ég ætla að skreppa austur og vera þar í “frívikunni” sem ég á í vinnunni hérna.
Gera hvað? Jú hjálpa pabba að gera við einhverja bíla þar sem að ég hitti kallinn í bænum í gær og hann kvaðst vera að drukna í verkefnum og hefði ekki undan. Ég tilkynnti honum að ég væri að fara að sitja á rassgatinu í viku og bauð honum aðstoð ef hann vildi. Eftir mikla umhugsun þá ákvað hann að taka því og við erum því að fara austur á eftir. Ég bið bara að heilsa ykkur þadddna sem ég lét ekki vita (nema hér) og við sjáumst eftir viku 
Kongówriter
Posted by Addi as Rugl at 4:23 PM UTC
1 Comment »
Já ræð mér varla fyrir hamingju þessa dagana. Af hverju? Jú ég kláraði MCSA námið (á enn 2 próftökur eftir nota bene) og hafði auðvitað sótt um hér og þar í svona smá draumórakasti þar sem ég er jú reynslulaus maður eins og er nema bóklega séð.
En í dag þá skilaði ég inn uppsagnarbréfi mínu til Öryggismiðstöðvarinnar eftir að ég hafði farið til Nýherja og þakkað fyrir góðar móttökur en tilkynnt þeim að því miður þá hafði ég þegið starf annarsstaðar fyrr þennan morgun og kæmi þar með ekki til með að vinna hjá þeim.
Jú…. þetta nám virðist strax vera að fara að borga sig niður þar sem ég er núna hvorki meira né minna en Kerfisstjóri hjá Skýrr hf. Yes indeedio!
Þetta segir mér auðvitað bara eitt sem ég hef náttúrulega hugsað í soldinn tíma. If you don’t dare dream then you won’t have any dreams to come true
Eftir mánuð þá kem ég semsagt til með að byrja að vinna á VENJULEGUM TÍMA! 8-16 eða 9-17 ef ég vil mæta seinna einhverja daga. Já eða 10-18 ef ég verð þunnur af allri þessari drykkju sem ég stunda ekki
Þetta þýðir auðvitað bara betri heilsa. Andlega og líkamlega séð þar sem nú verður ekkert regluleysi og rót á svefni lengur heldur bara normal shifts. Og hver veit nema maður fari þá að nota þetta líkamsræktarkort sem maður er jú alltaf að borga af anyway 
En allavega. Bara langaði að deila því að ég er nú skrefinu nær að eignast þennan bíl sem er hérna fyrir neðan!
Leiters geiters.
Posted by Addi as Rugl at 2:20 AM UTC
6 Comments »
Þessi bíll:
(Leðursæti og alles á rúmar 3 millur) (já notaður þadddna!)

Þessi fyrir sumarfríin með krakkana:
(Fann einn svona notaðann á 4.6 millur
)

Sumarhús á spáni:
(yeah no idea… eflaust hræódýrt að eiga villu á spáni
)

Og svo loks villa á Álftanesi.
Það er ekki komin mynd af henni ennþá þar sem að ég er enn að spá í útlitið og hönnunina á því húsi. Verður auðvitað nýtt frá grunni með tvöföldum bílskúr og heitum potti á veröndinni sem hægt er að loka af í köldum íslenskum vertrarnæðing. (allt er dýrt á íslandi)
Fer í þetta á morgun. En byrjum á byrjuninni. Finna helvíti vel launaða og góða vinnu.
Dreymandi Draugaskrifarinn.
Posted by Addi as Rugl at 12:55 AM UTC
8 Comments »
Jámmm það held ég bara. Ég varð veikur inni á spítalanum þegar ég fór aftur inn í vikunni.
The story? Sko.. þegar var komin rétt rúm vika eftir kirtlatöku þá vaknaði ég hérna í rúminu mínu með munninn og kokið fullt af blóði um miðja nótt. Joyful joyful hugsaði ég með mér þar sem ég áttaði mig á því að það hafði opnast skurðurinn öðru megin. Eins þrjóskur og ég er nú þá ákvað ég að liggja áfram í rúminu og bíða þar til þetta hætti. Ég sofnaði undir morgun og vaknaði svo aftur um hádegi í sömu stöðu. Fór til læknis upp úr 14:00 og hann ákvað að reyna að loka þessu sári með einhverjum kemískum bruna. Semsagt setur e-ð efni á þetta og kemur svo með pinna með einhverju öðru efni á (silfurnítrat eitthvað) sem hann rekur í sárið og þá kom gríðarleg vellíðunnartilfinning um svipað leyti og hann sýnir læknanemunum (já ég er alltaf til sýnis þegar ég fer á spítala) hvað er að gerast og segir “Hérna sjáiði hvernig sárið brennur allt núna og þá verður þetta allt svona svart og flott.”
Æðislegt semsagt. Jæja ég fer heim og ætla að halda áfram venjulegu lífi (eins venjulegt og mitt gerist allavega) og spái ekki meira í þetta. Fór snemma að sofa eftir að hafa troðið mig út af dönskum mini kanilsnúðum sem er næstum því það besta í heimi með kaldri mjólk. WELL! Ég vaknaði aftur næstu nótt að kafna í blóði. Yumm yumm.
Ég fór svo seinna um daginn niður á spítala aftur og hitti þá enn einn nýja lækninn. Þessi dama prufaði það sama og hinn læknirinn minn hafði gert áður en það gekk ekki til að stoppa blæðingu. Þá tók hún fram einhver “Hostel” looking pyntingatól. Langa flísatöng (leit þannig út allavega) sem var svo tengd við rafmagnspóla úr einhverju apparati. Kallaði svo til enn einn lækninn og bað hann að grilla mig saman. Þessi læknir grillaði mig nokkrum sinnum í hálsinum með einhverju rafstuði sem endaði á því að ég lyktaði eins og svið og var með permanent brunabragð í munninum. Já og þetta var svo líka alveg hrikalega þægilegt. EFTIR þetta allt saman sagði svo Dr.BBQ við mig “Það er alveg merkilegt að þú hafir þolað þetta. Venjulega þarf að svæfa fólk fyrir svona dæmi. Og þú ert enn ódeyfður og alles” (JÁ EFTIRÁ sagði hann þetta). Ég hafði semsagt legið þarna og látið kvelja mig alveg óhemju mikið, ekki þorað að hreyfa mig eða andmæla þessum kvölum þar sem að ég hélt að þetta væri “standard procedure”. Nei….. ekki svo mikið.
Eftir þetta allt saman var ég svo látinn fasta í nær sólarhring og íklæddur næfurþunnum, götóttum spítalaslopp í skítakulda þarna inni á spítala.
Og þá kemur að því er fyrirsögnin vitnar í. Jú ég er kominn með KVEF!
Næst þá blæðir mér líklega bara út áður en ég fæst til að fara aftur á spítala.
HímófílíAddi….
Posted by Addi as Rugl at 2:43 PM UTC
2 Comments »
Voðalega geta menn verið latir við að blogga. Og þá aðallega ég. Jú og Majan undanfarið. Hún þykist greinilega vera bissí í skólanum eða eiga sér líf blessunin.
En ég er allavega búinn að léttast! Og minnka. Léttast um svona milli 20 og 60 grömm líklega og minnka um svona 2-4 sentimetra í rúmmáli. Hálskirtlarnir fengu nefnilega að fjúka í dag. Eða… slitna eða hvað sem er gert við þá. Já og svo brennt fyrir. Er þetta virkilega smekklegasta leiðin til að gera þetta? Mér finnst þetta svo ljótt að sjá upp í mér að ég geri varla annað en að gapa framan í sjálfan mig í speglinum. En ég er víst ekki sá eini sem geri þetta á gamals aldri. Það voru alveg 2 þarna inni eldri en ég I’ll have you know!
Mjög laglegur svæfingalæknir frá danmörku svæfði mig. En talaði við mig ýmist á dönsku, sænsku eða norsku. Svona norðurlandakokteill. Þar sem hún var að læra íslensku þá svaraði ég auðvitað bara á íslensku til baka. Þrátt fyrir þá staðreynd að ég forstår alveg hin tungumálin og kann alveg að pråta/snakke þau. Bara kæri mig ekki um það edrú
Hjúkrunnarfræðingurinn sem sá um mig var kona sem að þekkti mig um leið og ég kom inn. Hún hafði starfað á Djúpavogi þegar við vorum bæði yngri og ég var mikið gestkomandi heima hjá henni á sumrin þegar ég var á kongó að leika mér við börnin hennar 2 sem eru bæði á mínum aldri. Lego var algjörlega málið á þeim tíma.
Svo var læknirinn sem framkvæmdi kirtlanámið mikla einnig læknirinn minn úr barnæsku. Hann hafði starfað á Hornafirði þegar ég var pjakkur. Maður var semsagt umkringdur æskuminningum í allan dag. Já og nokkuð snotri danskri dömu sem stakk mig.
Allt í allt þá var dagurinn bara mjög góður þar sem að ég fann ekki fyrir neinum óþægindum (fyrir utan bráðlátan þorsta) þegar ég vaknaði og var bara alveg á því að vippa mér frammúr og fara beint heim að borða.
En ég segi það samt sem áður að það er eins gott að það þurfi ekki að taka úr mér fleiri kirtla. Það er ekkert grín að þurfa að fasta!!
Addi 2.0
Pé Ess. Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar pakkið mitt
Posted by Addi as Rugl at 7:54 PM UTC
8 Comments »
software for service wordpress stats