my name is beta and im a lady. i like to talk and stroke kittens. i also like chocolate and i find long complicated words very appealing. i usually write on this blog in icelandic but i tweet in english. my facebook is icelandic but myspace is english. being on 19 socialwebs doesnt mean one is popular. there are fewer icelanders than there are not. thank you. i love you.

ég skrifa stundum í blöðin

hihi…muniði þegar ég, mæstró og mýrdal vorum alltaf að skrifa í velvakanda.

 

 

 “Hátt verðlag
Vegna komandi kosninga langar mig til að lýsa yfir óánægju minni með hátt verðlag á Íslandi.
Sem dæmi má nefna að ég fór í Ikea í vikunni og keypti nokkra hluti. Þegar ég kom að kassanum spurði kassastarfsmaður mig hvort ég vildi poka undir vörurnar. Ég spurði hvort það kostaði eitthvað aukalega og þá sagði hún fimmtán krónur! Ég sagði bara nei takk og hvet aðra til að gera hið sama. Betra er að koma bara með eigin taupoka þegar kaupa á í búðum.
Svo langar mig til að þakka fyrir mjög góða þjónustu í sólbaðstofunni Sælunni á Rauðarárstíg. Þar hefur þjónustan batnað til muna og starfsfólkið þar er kurteist og brosmilt.
Í því samhengi vil ég hvetja fólk til að bera á sig þar til gerð krem áður en lagst er í bekkina því það margfaldar árangurinn.”

og

“Á bls. 60 í 6.tbl af Dagskrá vikunnar er að finna málshátt á þessa leið: “Sá sem vill eiga gallalausa unnustu giftist aldrei.” Þetta er svo sannarlega satt og finnst mér að margir ungir menn mættu taka þetta til sín. Enginn er fullkominn en margir eru hressir. Ég hef nú áður skrifað í Velvakanda og var þá ósátt við málshátt sem ég sá í 5.tbl en ég sé núna að það er ekki hægt að bölsótast út í blaðið í heild sinni þrátt fyrir einn og einn ósmekklegan brandara. 

Dagskrá vikunnar er gott blað. Í því er hægt að sjá hvað er í sjónvarpinu á hverjum einasta degi og svo eru skemmtilegar greinar um það sem er að gerast í leikhúsunum. Einnig finnst mér alveg dæmalaust skemmtilegt að skoða afmælisbörn dagsins og lesa þá stjörnuspá þeirra í Mogganum strax á eftir. Stjörnurnar segja svo mikið um karakterinn og finnst mér ég þekkja fræga fólkið betur eftir þennan leik og mæli sérstaklega með honum. Að síðustu langar mig til að koma á framfæri vonbrigðum yfir að Papa Johns sé hættur störfum…á þeim pizzastað var gaman að vera og góðan mat að finna. Takk fyrir.

eða

“Ég vildi bara koma því á framfæri hve gott mér finnst að versla í Bónus. Í Bónusbúðunum er hægt að fá allt það helsta sem nauðsynlegt er að eiga til matar á hverju heimili. Verðið er mun lægra en í öðrum verslunum á höfuðborgarsvæðinu og það er fullkomlega ástæðulaust að vera feiminn við að láta sjá sig í þessum verslunum. Þegar ég var síðast í Bónus í Skeifunni var til dæmis Sverrir Bergmann fyrir aftan mig í röðinni. Það geislaði af Sverri og það var auðsjáanlegt að hann var ekkert feiminn við að vera þarna. Þegar ég hafði lokið við að borga gekk ég hnarreist út með pokana. Mig langar einnig til að geta þess að ég hef líka séð einn af meðlimum Sálarinnar hans Jóns míns í Bónus á Seltjarnarnesi. Ég man bara ekki í augnablikinu hvað hann heitir.

Svo langar mig til að minnast á það að ég er hjartanlega sammála lesanda sem skrifaði grein sem birtist í velvakanda 22. apríl síðastliðinn. Þar minntist viðkomandi á hve kröfuharðir karlmenn geti verið til kvenfólks. Það er ekki til einn einasti kvenmaður hér á jarðríki sem er fullkominn og það er leiðinlegt ef einhverjir karlmenn halda annað. Í því samhengi vil ég lýsa því yfir að mér finnst Dagskrá vikunnar gott blað en þó er ég sammála því að þarna geta verið ósmekklegir brandarar innan um. Mig langar líka til að mæla með riti sem ég fæ inn um póstlúguna mér að kostnaðarlausu í hverri viku sem heitir Birta. Það er oft gaman að glugga í það í góðu tómi.” 

hihihi…svo eru fullt af öðrum sem eru týndir. best fannst mér þegar mæstró og mýrdal skrifuðu um hundahald einhversstaðar og settu mitt nafn undir. hihi…alveg sorglegasta greinin. nei gúm eða skúm er enn í uppáhaldi. en já…ég byrjaði að pæla í velvakanda því ég er búin að taka þetta skrefinu lengra og skrifaði heila grein í fréttablaðið um hvað ég er hneyksluð á þjóðinni sem hjálpar ekki dömu í kröggum.

og hún var birt með mynd og allt eins og alvöru grein…hihi. ó, ég elska litla landið okkar.

sól 101

lækjarbrekka