gaaaaah…
Posted July 4th, 2007 by betanvið addi erum að fara upp í súmarbústah og ipodinn minn er tómur því itunes í pc er svo skringilegt. þannig að nú þarf ég bara að búa til lagalistana inni á harðadisknum og ekki í itunes og færa svo yfir þegar ég kem heim. ógillet ves skiljiði. það er alveg rosalega mikið sem þarf að gera þegar maður ætlar upp í sumarbústað án þess að geta stólað á mömmu með matinn og pabba með gaddjettið. ég hef aldrei farið í rómantíska sumarbústaðaferð áður. ég hlakka til. en er samt ógilla stressuð því ég þarf að gera svo mikið.
kannski sofum við bara fyrstu þrjá dagana. það væri nú ekki úr vegmmmmmmmmm……. nei glætan. það er ógeðslega mikið að gera. er með skrilljón bækur um skipulag, peninga og trúmál. jebb…betan er að fara að tékka á hvaða trú er til. kannski guð hafi bara verið að tala við mig í tannlausa draumnum og segja “jó…beta!!! þú getur þetta ekkert sjálf skiluru…ég skal hjálpa þér mar!!” ég ætla semsagt að lesa um trúarbrögð heimsins og finna út hvaða guð þetta var sem var að holla. jáh… ég mun koma betri kona úr sveitinni. eða ekki. finnst svolítið fyndið að vera að fara í vikufrí og búin að skipuleggja svona mikið til að gera í fríinu. æjá…ég þarf að finna mér hættareykjabók því ég ætla líka að hætta að reykja upp í sumarbústaðnum. hósthóst. ég er ekki að djóka sko. það verður engin sígaretta tekin með upp í bústað. ekki ein. nema addi taki með emergency pakka ef ég skyldi byrja að berja hann upp úr þurru…