myglandi menntun?
Posted April 7th, 2008 by betanég er bókmenntafræðingur. ég nýti það nám ekki. ég vinn í þjónustugeiranum. þeir sem voru með mér í bókmenntafræði eru í blaðamannsharkinu og þess háttar sem ég treysti ekki alveg á á þessum síðustu og verstu tímum. lúxuskreppan veður yfir allt og fólk er í tremma. eða ekki. en allavega…
tvisvar hef ég ákveðið að fara aftur í háskólann og læra fyrir kennsluréttindi en hef verið synjað um inngöngu í hí þar sem ég er bókmenntafræðingur og íslenskan var ekki kennd árin sem ég sótti um. samkvæmt hí get ég semsagt bara lært kennsluréttindi fyrir íslenskukennslu.
núna var ég næstum búin að ákveða að fara í kennslufræðina í hr þar sem hún lítur mun betur út en er einnig miklu dýrari. Ef ég fer í fullt lánshæft nám, sem er ódýrasta leiðin þá kostar námið 274 þúsund og tekur tvær annir. Ég gæti líka tekið þetta á tveimur árum en þá kostar námið 300 þúsund plús náttúrlega auka ár af lífinu.
en allir mæla með þessu og er fjölskyldan æðislega stolt að ég ætli aftur í nám. eitthvað alvöru nám sem nýtist mér í vinnu. en gerir það það? addi sendi mér þessa grein eftir marínó g. guðmundsson þar sem hann reiknar út að langskólagengið fólk fær bara ekki baun aukalega fyrir menntun sína.
minnti mig á pirringinn sem ég upplifði þegar ég var komin með þessa b.a. gráðu og það hafði bara ekki rass að segja. ég hækkaði ekki neitt í launum og fór í viðtal í glitni þar sem ráðgjafinn sem átti að hjálpa mér hló að mér og sagði að ég yrði einfaldlega að fá hærri laun vilji ég losna við skuldahalann.
en já. ég mæli endilega með því að þið lesið þessa grein og veitið mér ráð. á ég að vera að eyða 300 þúskelli í nám sem gefur mér réttindi til að vinna vinnu sem réttindalausir vinna nú þegar? hver er munurinn í launum…kennararéttindi vs. ekki?
kannski ætti ég bara að fara í iðnnám…læra smíði eða eitthvað. smiðirnir eru nú of fáir og setja upp kjánaleg verð sem fólk einfaldlega verður bara að borga. svo virðist sem öll menntun sé farin að mygla og til þess að maður sé gjaldgengur í samfélaginu verður maður einfaldlega að læra á tólin til að ná í upplýsingar. engin man neitt lengur. þetta snýst allt um viðmót. svo getur þú bara flett upp upplýsingunum sem þú þarft til að sinna starfinu. eða hvað?