desember 2002
Posted December 25th, 2002 by betandesember 23, 2002
bókin, skólinn, bloggið, vinnan og
bókin, skólinn, bloggið, vinnan og lífið hefur verið svolítið stór pakki síðustu mánuði og til að halda geðheilsu verð ég að gera einhverjar breytingar. var að hlusta á eina smáskífu með coldplay þar sem þetta lag skaut sér inn í mig …
Stuck here, in the middle of nowhere,
With a head ache, and a heavy heart,
Well nothing was going quite right here,
And I’m tired, I can’t play no part.
ég er farin. vona að þið skiljið. megið þið eiga hátíðleg og falleg jól í faðmi fjölskyldu og vina og veriði sæl.
Posted by Beta at 04:39 EH
ég ætla ekki til pakistan.
ég ætla ekki til pakistan. mig langar að vera hér. eiga kósý jól hér og glimrandi áramót í faðmi allra sem ég elska. ég ætla ekki að vera á netinu. ætla að einbeita mér að raunheimum.
Posted by Beta at 04:24 EH
fékk bréf í dag: Dear
fékk bréf í dag:
Dear friend,
How r u,i see ur profile,i like this and ur pic,i want friendship to you,if u make me friend,u will be find me good,i want good and sincere friend ship then marry,i am 28,i live in pakistan,i will wait urs good mail,
thanks, ALI
ætti mar að svara?
Posted by Beta at 01:25 EH
desember 22, 2002
skrýtið….ég er búin að upplifa
skrýtið….ég er búin að upplifa alveg fáránlega slæman mánuð og er varla komin í jólastemningu…..vonandi fer hún að koma…
Posted by Beta at 09:07 EH
jæja…þrátt fyrir að djammið á
jæja…þrátt fyrir að djammið á föstudaginn var svona skemmtilegt tókst mér að láta stela af mér símanum. þannig að ég er búin að týna öllum númerum og ef ég er í símaskránni þinni sendu mér þá sms eða meil með símanum þínum :)
stökk bara til að keypti mér nýjan í jólagjöf á raðgreiðslum. ógurlega sniðugt og frábær þjónusta hjá fróða og kó á laugaveginum. mar borgar bara fimmhundruðkall út….alveg ofsa frábært. svo var mér boðið á sýningu stuttmyndarinnar hans ara eldjárns sem heitir tindar….ábyggilega alveg frábær mynd en ég svaf yfir mig og missti af henni. algjört fíbl ég og mér finnst þetta frekar fúlt því mig langaði að sjá þessa mynd.
annars fór ég með stelpunum á eitthvað hiphopdjamm á stúdentakjallaranum í gær. eini reggí dídjei íslands var að spila og var hann voða svít. bauð mér á einhverja myndlistasýningu sem hann er með í hinu húsinu…heitir kalli og er exgraffari. tékk it endilega. en þarna var voða kósí stemning, allavega meðan hann var að spila. æ, maður er orðinn svo vanur þessum bévítans kúlistum alltaf hreint og þetta var alveg frábært kvöld…enginn að kafna úr kúlisma en eins og við vitum er kúlið dyrin að helvíti. meira að segja sagði dyravörðurinn mér að hann væri á lausu og spurði um númerið mitt en ég þorði ekki að gefa honum það ef hann skyldi vera að gera grín að mér. svo bað hann víst röggu líka…hefur örugglega spurt allar stelpurnar þarna. ó vell….
Posted by Beta at 08:33 EH
desember 21, 2002
úff hvað var ógurlega gaman
úff hvað var ógurlega gaman í gær…
byrjaði í bókópartýi sem var gott stuð. tímaeyða. svo endaði ég sem semigrúppía hjá hljómst sem heitir panik eða panic eða panikk eða eitthvað en þeir heita það samt ekki lengur því augljóslega er það allt of ljótt nafn á hljómst. missjón kvöldsins var svo að finna nýtt nafn á hljómstina en ég er ekki frá því að hljómstarmeðlimir séu samt meiri grúppíur en ég. mjög skemmtilegt kvöld sem endaði allt, allt of snemma. við reyndum að láta ljós okkar skína á celtic cross. gekk ekki. allavega….
fór í popppppunkt áðan og klappaði ofsa mikið. ham vann. en nú….djammskí!
Posted by Beta at 11:07 EH
desember 20, 2002
If you don’t have
If you don’t have the time to do something right, where are you going to find the time to fix it?
- Stephen King
Posted by Beta at 06:45 EH
úúúúbeibe….ég fæ að vera í
úúúúbeibe….ég fæ að vera í salnum á suðupunkti popppunkts….jeeee……..hvort ætti mar nú að halda með rúna eða grjóna……hmmmm??? ætli mar haldi ekki með ham….blöndalinn er so mikið æði. var stopp við hliðiná honum á ljósum um daginn og við vorum bæði næstum búin að bíða af okkur græna ljósið því sólin skein svo skært. gaman að vera saman heiladauður í umferðinni…
allavega…svo verður nottla haldið niðrá sportkaffi þar sem uppskeruhátíð popppppunktsmanna verður haldin í góðu geimi. en þar er hægt að horfa á þáttinn á breiðtjaldi fyrir þá sem eru ekki eins heppnir og ég og fá að mæta í steikjandi sjónvarpssalinn. eða kannski þeir sem mæti á sportið séu heppnari því þar verður allt flæðandi í fríbúsi…jeeee!
þannig að alir að mæta á sportkaffið og hrópa húrra annað kvöld klökkan níu!!!
gaman gaman gaman…..fríbús og popp….gaman….til hamingju gunni!!!
Posted by Beta at 01:36 EH
desember 19, 2002
jöminn, hvað margeir er meðetta
jöminn, hvað margeir er meðetta á hreinu….sjiss…..
Posted by Beta at 06:14 EH
þetta er nú með fokking
þetta er nú með fokking ólíkindum….fór á daysleeper í svona sjöunda skiptið í kvöld. og missti af þeim. í fokking sjöunda skiptið. er alveg ótrúlega velviljug en óheppin grúppía mar….sjiss.
hlustaði á rush of blood…parachutes…einhverja singla og ep plötuna frá noregi í bílnum á leiðinni til og frá fljótshlíð. var tvo tíma uppeftir en klukkutíma heim….er það hægt? eníhú….kóldplei á morgun. jei.
Posted by Beta at 01:03 FH
desember 18, 2002
nú er ég að fara
nú er ég að fara að keyra upp í fljótshlíð því mín verður að lesa upp á kaffi langbrók ásamt ara trausta, einari kára og…hmmm…einhverjum öðrum. ætla að hlusta á coldplay alla leiðina og hita upp…..coldplay, coldplay, coldplay…. þetta verður æði!!!
Posted by Beta at 05:27 EH
jeijeijei…var að fá ofsa skemmtilega
jeijeijei…var að fá ofsa skemmtilega dóma í mogganum…jeeee!!!
og mér er boðið á coldplay og ég hlakka ekkert smááááá til….jei. er búin að vera lesa upp á nokkrum stöðum…alveg æðislegt. ísó er yndó. ég las fyrst fyrir menntaskólakrakka og var beðin um að lesa meira og meira. held að ég hafi bara lesið næstum alla bókina. svo hitti ég nottla sirrý sem var memmér útí brussel. mikið þykir mér vænt um hana. semsagt mjög gaman og allir alveg æðislegir. fólk er fallegt og við megum ekki láta heiladauð fífl skemma trúna á alla hina.
svo las ég upp í grunnskólanum á bolungarvík og þar komu þau mér svo að óvörum að það hálfa væri nóg. mér finnst nefnilega unglingar vera svo fullorðnir eitthvað og á voðalega erfitt með að fatta að þau eru 10-13 árum yngri en ég. kannski ég verði bara kennari þegar ég verð stór…langar varla lengur að vera blaðamaður, er einhvern veginn að missa allan áhuga á fjölmiðlum. skítapakk.
ísafjörður…takk fyrir mig.
Posted by Beta at 05:24 EH
desember 16, 2002
jæja…búin í prófum eftir fjóra
jæja…búin í prófum eftir fjóra tíma. svo fer ég beint til ísafjarðar og les upp í grunnskólanum hjá frænda mínum. hann er fjórtán og kúl og ég verð að fara að lesa upp fyrir hann. það verður gaman. svo hitti ég fiffann og les upp á apótekinu og eitthvað…..brjáluð dagskrá á ísó :) jei!
Posted by Beta at 09:39 FH
desember 15, 2002
ætlaði sko að láta coldplay
ætlaði sko að láta coldplay glæda eins og ég er búin að gera með sigur rós og nick cave en ég verð búin í prófum….ekkert að gera….finnst platan æðisleg….þekki einn þeirra alveg næstum því persónulega (þúst…hann kom í partý heim til mín þegar hann kom í helgarferð að hitta ónefnda vinkonu mína)…. var að lesa viðtalið í mogganum áðan….fannst hinir tónleikarnir geðgir….úff….
Posted by Beta at 05:03 EH
hjálpum nú sigga antoni að
hjálpum nú sigga antoni að losna við coldplay-miðana sína…sendið honum póst: sgi@cu.is
annars langar mig alveg ógeðslega á þessa tónleika en á ekki krónu. kannski siggi vilji bara gefa mér sína miða….ha??? eða bjössi beibí…ha?? bjössi minn…..ha? í stuði?
Posted by Beta at 04:56 EH
ég trúi því varla að
ég trúi því varla að ég skili síðasta verkefni á morgun og þetta verði svo búið. nú er ég að skrifa ritgerð um ókláraða bók eftir kafka, ameríka. ég var svo vitlaus að velja mér bók sem kennarinn minn þýddi… deindjöröss… mikið hlakka ég til að vera komin yfir þetta tímabil….og ég er að komast yfir það með aðeins eina kvíðastillandi og ekkert prósakk. en greinilegt er að mig hefur vantað prósakk vegna þess að ég hef aldrei verið eins tíkarleg og staðið í hárinu á jafn mörgum á jafn stuttum tíma. ég hóf mörg stríð á þessum mánuði og þau hafa kostað sitt. ég vil biðja alla sem ég talaði við frá nóvemberbyrjun afsökunar. en þetta er ekki búið. skellurinn kemur svo fyrir alvöru þegar mér verður tilkynnt fall. engin lán. missi íbúðina og þá fyrst fer allt í voll.
stei tjúnd…jú dónt wanna miss ðis!!!! [andvarp]
Posted by Beta at 03:19 EH
desember 13, 2002
aaaaahahhahahha….ég sagði office space….ég meinti
aaaaahahhahahha….ég sagði office space….ég meinti nottla office one. en office space er ein uppáhaldsmyndin mín :)
Posted by Beta at 06:29 EH
úff….ég og jón gnarr þurfum
úff….ég og jón gnarr þurfum að árita bækurnar okkar í bt og office space á morgun. er skíthrædd við það mar. alltaf þegar það eru svona áritanir þá situr höfundurinn einn í hálftíma, horfir á hurðina og vonar að einhver komi. yfirleitt kemur ekki neinn. ef svo vildi til að þið eigið eða eruð búin að óska þess að fá bókina mína í jólagjöf verð ég semsagt að árita á morgun.
13-13:30 í bt í smáralind
14:14:30 í office space í skeifunni
æ, hvað ég kvíði fyrir… við megum nefnilega ekki vera saman. meðan hann er í office þá á ég að vera í bt. vildi að við værum saman á stöðunum, þá hefði maður allavega eitthvað að gera…
Posted by Beta at 05:48 EH
hmm….promazin kynnir terminator 3 .:.
hmm….promazin kynnir terminator 3 .:. rise of the blogger??? mér sýnist þetta vera ég?
Posted by Beta at 03:18 EH
jei….konan á móti eldhúsglugganum mínum
jei….konan á móti eldhúsglugganum mínum vinkaði okkur loksins….og það var bara síðast í nótt sem ég var að segja söguna af því þegar ég mætti henni á búbbulínunum á sunnudagsmorgni. ég bakkaði út úr eldhúsinu því ég var í g-streng og vildi ekki að hún héldi að ég væri alveg böttnekked með engin gluggatjöld í íbúðinni. allavega…síðan eru liðnir margir mánuðir og ég hef vinkað henni eins og mongó en aldrei fengið viðbrögð. áðan vorum við ragga svo að taka til í eldhúsinu og vinkum henni báðar….og viti menn….hún vinkaði til baka og ég er ekki frá því að það örlaði á brosi. og það tók bara 13 mánuði :)
hmmm….það er eiginlega fáránlegt hvað þetta veitir mér mikla fró……
Posted by Beta at 02:26 EH
geeeiiisp ókei, ætli ég verði
geeeiiisp
ókei, ætli ég verði ekki að tjá mig um þessa fokking slúðursögu. ég setti hana á netið. heimildarmaðurinn hringdi. ég tók söguna út. svo sé ég hjá katrínu að sagan er komin á tilveruna en ég er akkúrat ekkert tengd henni þó svo að ég sitji heima hjá mér og skrifi smá í undirtóna. ég hringi strax í tilverumennina og bið þá um að taka þetta út. þeir úti í bæ þannig að þeir taka söguna út um leið og þeir koma aftur í tölvu. þetta var svo einfalt.
kannski var þetta of gróf saga en mér fannst hún fyndin og skemmtileg. allir fróa sér en fáir lenda í svona skemmtilegum aðstæðum. en svansson segir þetta bull og biðst ég afsökunar á að hafa birt þetta þó hann pirri mig eins mikið og ég pirra hann. ég gerði mér enga grein fyrir að þetta myndi berast eins og eldur um sinu til allra sem svansson hefur nokkurn tímann átt samskipti við. er að sjá núna að það eru kannski ekki bara 100 manns sem kíkja oft. passa mig í framtíðinni. en kenning svansson um að þetta hafi allt verið útpælt er algjörlega út í hött. þið vitið að ég er ekki alveg svo lævís.
en mikið er svarið hans svansson langt….
Posted by Beta at 01:09 EH
meðleigjandi óskast ef þú veist
meðleigjandi óskast
ef þú veist um einhvern sem vantar íbúð með meðleigjanda sendu mér póst og ég kem honum áfram. stór íbúð í reykjavík með eldhúsi, klósti og allt.
Posted by Beta at 02:32 FH
desember 12, 2002
jei. myndbandið mitt er í
jei. myndbandið mitt er í 14.sæti á popptívílistanum. vinir mínir greinilega duglegir að fara á vaxtalínuna og kjósa mig. en ég verð nú bara að segja að birgitta er þúsund sinnum betri en einarinn á þessum lista….ekki bara því hún talaði um bókina mína í alveg mínútu….alls ekki….nei, hún er einfaldlega betri að kynna…mig….neinei…hún er bara almennt betr……æ, ér farin að leggja mig.
Posted by Beta at 09:36 EH
Aflátsbréfasali lagður í einelti. Aflátsbréfasölu
Aflátsbréfasali lagður í einelti.
Aflátsbréfasölu er bæði vel tekið og þykir einnig svívirðilegt uppátæki. Eftir að framkvæmdarstjórn Kringlunnar lagði bann á vöruflokkinn í Kringlunni, Hefur Snorri Ásmundsson aflátsbréfasali orðið að þola mikið mótlæti við að markaðasetja vöruna. Fólk hefur hringt og hótað mér og ýmsir forystumenn í trúarhreyfingum hafa haft miður jákvæð orð um syndaaflausnina sem í boði er fyrir sanngjarnt verð. “Ég bjóst ekki við þessum viðbrögðum, sumt fólk er mjög reitt og þetta segir mér bara að það sé full þörf á því að veita fólki fyrirgefningar. Ég hefði haldið að fyrirgefning myndi frekar gleðja fólk en að æsa það upp til óhæfuverka.” Segir Snorri Ásmundsson sem hefur undanfarið selt aflátsbréf og veitt fólki aflausn af syndum sínum.
Snorri mun vera staðsettur á Nýlistasafninu fram að jólum þar sem hann mun selja vöruflokkinn á jólabasar safnsins sem hefst í dag föstudag og verður fram að jólum. Nýlistasafnið hefur gefið leyfi til sölu aflátsbréfanna á safninu fram að jólum, enda um framsækið safn að ræða þar sem kærleikur manna á milli er í hávegum hafður.
Það er ekki til fallegri jólagjöf en fyrirgefninguna og aflátsbréfin því hin fegursti jólaglaðningur landsmanna. Eða hvað?
Posted by Beta at 07:19 EH
hei, æsa er í fréttum
hei, æsa er í fréttum í kvöld….arg….og ég er á þjóðó…arg….
Posted by Beta at 06:34 EH
það er ein stelpa hérna
það er ein stelpa hérna í þjóðarbókhlöðunni sem er í bleikum buxum og með bleika spennu og teygju í dökku hárinu. hún er öll í stíl og er langsætust hérna. ég mæli með að allir gangi í fötum í stíl.
Posted by Beta at 06:31 EH
sko, útí amríku er vaninn
sko, útí amríku er vaninn að brosa ef maður lendir í augnsambandi við einhvern. maður má alls ekki venjast þessu. vinkona mín vandist þessu þegar hún var í amríkunni og svo kom hún heim og enn þann dag í dag er hún álitin einhver perri. núna er hún á fullu að temja sér að horfa kuldalega í augun á fólki og æfir reglulega pókerfeisið til að vera eins og hinir.
Posted by Beta at 05:23 EH
ú…bloggari sat á móti mér
ú…bloggari sat á móti mér í þjóðó um daginn.
sko, mér finnst að allir bloggarar eigi að vera með nafnspjöld og dreifa ef þeir sjá og þekkja aðra bloggara í sjón.
Posted by Beta at 04:44 EH
fór á twin towers um
fór á twin towers um daginn því það voru leftóvermiðar til. heppna ég. svo komst ég ekki í sæti við hliðiná neinum sem ég þekkti en einhvern veginn voru allir í salnum ofsa góðir vinir. mikið um bros og kollakink. ábyggilega bara einhver stór fyrirtæki og fjölmiðlarnir eða eitthvað. það sem mér fannst skemmtilegast var að poppið og kókið var frítt.
ég er samt alveg hrifin af tolkien og dýrkaði fyrstu myndina. en þessi mynd er náttúrlega án upphafs og endis þannig að maður er einhvern veginn að sitja hana í gegn í þrjá tíma gerandi sér grein fyrir að hún klárast ekkert. mér fannst samt ógurlega gaman að horfa á elijah sem finnst hreimurinn minn “amazing”. ekki það að ég sé að neimdroppa eða neitt sko…ekki það að ég sé að monta mig yfir að hafa talað við hann eða neitt sko….í fjörtíu mínútur sko…..og hann vildi fá bókina mína senda og allt…ekki það að það skipti mig neinu máli. svoleiðis hégómlegir hlutir hafa engin áhrif á mig og ég var ekkert að pæla í því meðan ég horfði á myndina.
Posted by Beta at 04:41 EH
bókin mín var dæmd á
bókin mín var dæmd á gufunni undir einkunnarorðunum hedónismi og hjásvæfur. ég þurfti að fletta öðru orðinu upp.
Posted by Beta at 03:14 EH
varðandi svanssonsöguna heimildarmaðurinn minn hringdi
varðandi svanssonsöguna
heimildarmaðurinn minn hringdi í mig og bað mig um að taka söguna um svansson út. hann sagði mér þetta á fylleríi og gerði sér enga grein fyrir því sem fossaði út um munnvikin. þetta er víst bara sögusögn og kannski bara helber vitleysa. keis klósd.
Posted by Beta at 02:52 EH
fordómar út í læknanema ég
fordómar út í læknanema
ég var kölluð út í gær til að lesa upp á litlu jólum læknanemadeildarinnar. ég stökk til, fór í pils og setti á mig gloss því auðvitað bjóst ég við 26 ára, ekki svo sætu fólki í drögtum og jakkafötum. á leiðinni inn mæti ég 5 strákum í sígó og trúi varla að ég sé á réttum stað. hönkadoríheaven. ég varð öll feimin og var vísað inn í sal. mæti þá bara hópi af unglingum (21-24 ára) og allir þarna inni voru fantabjúlöslí bjútífúl OG hipp og kúl en samt sjúklega næs og brosandi. svo koma meðlimir hönkadoríheaven inn og þá voru þeir líka verðandi læknar. jöminn einasti. fallegt fólk getur semsagt verið gáfað. nó dát…ég sagði við einn meðlim h.h. sem var að koma úr sígó: “takk, fyrir að koma” en í raun meinti ég: “þú er æði, viltu byrja með mér?” alveg þarf maður að svindla sér í vísó hjá læknó mar…en þetta var ofsa gaman og ég held meira að segja að þau hafi hlustað á upplesturinn allan í gegn. mad props fyrir það.
svo fór ég heim og sá 70 mínútur. ó…mæ…god…..makeover and a diet and a half cumin up fyrir betuna. hillary tók öll völd. ég hatana. ég ætla að drepana.
en nú…ibsen.
Posted by Beta at 08:39 FH
desember 11, 2002
vorum að fá glænýtt klósett
vorum að fá glænýtt klósett þannig að nú er baðherbergið okkar ekki ghetto fabulous…bara fantabulous… nú getur elvar og fleiri litlir rapparar komið og kúkað að vild en elvar var bannaður eftir eitt stórt dömp þar sem hann gat ekki sturtað. hann missti sig…hrinti röggu og hljóp út. einhvern veginn tókst honum samt að skilgreina sig sem kúlistann í því samhengi…hmmmm….
Posted by Beta at 03:21 EH
þetta er svo sjúklega típískt
þetta er svo sjúklega típískt fyrir mig…
ég er að lesa fyrir hóp af fólki… unglingar sem virka voða harðir…ókei…ég ákveð að lesa hasskaflann en það er einn hasskafli í bókinni…lísa verður voðalega hæ og er slefandi úr sælu og allt er æðislegt þegar mar er dópaður. þegar ég er búin að lesa kemur maður til mín og segir mér að gestir í salnum séu frá götusmiðjunni. þeir máttu ekki einu sinni súpa á maltinu….
Posted by Beta at 02:17 EH
jójójó píps…. ástæðan fyrir því
jójójó píps….
ástæðan fyrir því að ég tók kommentakerfið út var því að ég var hætt að blogga… ekkert að kommenta á og ég nennti ekki að halda þessari vitleysu sem var komin þarna áfram. en auðvitað verður vitleysan að halda áfram meðan þið viljið að hún haldi áfram :) ég setti kommentakerfið aftur á þannig að gó nöts ;)
annars er allt fínt að frétta…púkinn er voða sorrí 16 ára patti og ég er löngu komin yfir þetta. hitti meira að segja þráinn hljóðmann í dag og hann blés bara á þetta eins og móbí dikk. sigurjón ákvað að salta mig í stað þess að jarða mig því það er ekkert skemmtilegt útvarpsefni. hann komst að því í stríðinu við líonsí. hjúkket því ekki vil ég vera líonsí.
annars var ég að lesa upp í ding dong í morgun og var æðslega hress og þeir voru æðslega hressir. núna er ég að fara að leika við sveppa og kó hjá 70 mínútum. en fyrst…leikritagreining á þjóðníðingnum eftir ibsen…soldið kaldhæðnislegt ég veit ;)
Posted by Beta at 10:32 FH
desember 09, 2002
eruði ekki að grínast í
eruði ekki að grínast í mér. þegar ég sagðist vera hætta að blogga meinti ég það. ég er í prófum og þau eru mjög strembin. haldiði virkilega að ég taka stamandi fífl sem geta ekkert nema endurtekið sig sí ofan í æ, alvarlega?? elvis og einhverjir voru að saka mig um ritskoðun en ég hef aldrei ritskoðað neitt eða tekið út neitt af kommentakerfinu sem vísar til mín…en ég hef gert það þegar um aðra menn og konur er að ræða.
ég geri mér fulla grein fyrir að þetta varð að svona athyglisbombu hjá tveimur aðilum og nú hef ég tekið niður kommentakerfið þannig að þeir geta farið að fróa sér annarsstaðar.
auðvitað er ég ekkert hætt að blogga fyrir fullt og allt…þið sem komið hingað reglulega gerið ykkur án efa fyllilega grein fyrir því að ég er með pikkþörf dauðans og þó að ég gæti verið búin að blogga svona 34 sinnum síðust daga bannaði ég sjálfri mér það og kíkti ekkert hingað….ég á að vera að læra. en svo er fólk farið að hringja í mig og vorkenna mér fyrir eitthvað kjaftæði á röflinu???hvað er það?? það er allt í lagi með mig. ég las ekki helminginn af því sem þessir strákar skrifuðu og mér gæti ekki verið meira sama. svona rugl er ekki svaravert.
kæru vinir og kunningjar, ég endurtek: ég er í prófum. ég er ekki dauð. ég er ekki þunglynd. ég er bara upptekin.
hafið það gott í jólastressinu og njótið lífsins…
Posted by Beta at 05:47 EH
desember 08, 2002
í fyrsta lagi vil ég
í fyrsta lagi vil ég bara segja ykkur að ég hætti að blogga og kíkja á þessa síðu mína því ég fékk nóg. ekki því ég er athyglissjúk og var að kalla á viðbrögð! held það sé enginn það narsískur en svo eru komin yfir 130 komment!! sjáiði firringuna? ég trúi ekki að það skipti einn né neinn einhverju höfuðmáli hvort ég bloggi eða ekki…. eftir 50 ár verðum við hvort sem er öll dauð og þá skiptir ekkert af þessu neinu máli.
að sjálfsögðu er ég voðalega þakklát þeim sem svara fyrir mig en ekki hafa áhyggjur af því að ég sé að taka vondu kommentin á mig. fólk er að taka þessu öllu allt of hátíðlega. ég nenni því ekki. það sem ég er að taka inn á mig þessa dagana er persónulegt og kemur ykkur ekkert við.
þetta er minn vefur og ég geri það sem ég vil. leyfið mér bara vera í prófum og ástarsorg í friði.
pís.
Posted by Beta at 11:01 FH
frikki þú ert gull og
frikki þú ert gull og manda….takk fyrir mig.
Posted by Beta at 10:42 FH
desember 04, 2002
takk daddi. kannski þetta sé
takk daddi. kannski þetta sé rétt hjá þér … er þetta þess virði?
eftir að hafa lesið röflið hjá mér finnst mér ekki. það er ekkert gaman að vera með blogg lengur …
Posted by Beta at 10:54 EH
úff, hvað þessi upplestur var
úff, hvað þessi upplestur var vondur.
stefán máni heilsaði mér og ég fór tísti bara og sparkaði ekki í sköflunginn á honum. svo fengum við ekki sæti og sátum bara frammi að tala um öreindirnar og gullasnann fyrir prófið á morgun. góðar bækur bæ ðe vei. svo er allt í einu komið að mér og ég þarf að troðast í gegnum fullan salinn og hleyp upp á svið en er ekki búin að sjá neinn lesa upp þannig að ég fer bara að mæknum á miðju gólfinu og fer að afsaka biðina.
þá kallar einn utan úr salnum og segir mér að fara í pontu. dísess kræst. ég vippa mér yfir. allir fatta að ég var frammi meðan hinir voru að lesa upp og er orðin móð af stressi og hiksta upp úr mér textanum í einhverju kasti. djöfull. svo hljóp ég út um leið og ég var búin og verð lesandi í alla nótt.
alveg hefur hlakkað í stefáni mána þegar hann sá með berum augum að ég er vafalaust bjáni bókmenntaheimsins.
Posted by Beta at 10:45 EH
vaaaáá….jafar kez var að tékka
vaaaáá….jafar kez var að tékka á tilboðum hjá mellunum fyrir jólin og ein tekur enga feita eða fatlaða.
“Mundu aldurstakmarkið: 26 ár. Yngri geta því miður ekki notið þjónustunnar. Stórir og mjög feitir menn ásamt fötluðum mönnum geta ekki heldur nýtt sér
þjónustu mína, því miður. Í von um að þessu sé sýndur skilningur.”
þetta finnst mér tríst. eru þessir menn ekki stærsti kúnnahópur hóranna??
Posted by Beta at 10:09 FH
þá held ég að niðurlægingartímabili
þá held ég að niðurlægingartímabili þessa vefs sé lokið. ég vil þakka öllum sem lögðu hönd á plóg og gerðu þetta að eins áhugavert og raun ber vitni. heimsóknafjöldinn tók stóran kipp og að sjálfsögðu er það sem skiptir máli.
sumir halda því samt fram að sigurjón sé aldrei að dissa mig. það er bull. ég trúði varla þegar hann kom með “ha, ég?” týpuna á þetta. einu skiptin sem hann segir mig snilling er þegar ég er að fokka einhverju upp eins og með chloe eða kærustu ron jeremy. það var einmitt það sem ég var að setja út á. ömurlegheitin eru það besta sem hann veit um og ef maður er ekki að einbeita sér að þeim er “nákvæmlega ekkert að gerast og bara leiðinlegheit í gangi.” en svo þegar spjótin beinast að honum er náttúrlega vart þess virði að tala um þau vegna þess að hann er bara lítill hörundssár drengur undir þessari skykkju sorans. það þykir mér miður.
er að lesa upp í iðnó klökkan hálf níu.
þar mun ég lesa upp með stórvini mínum (eða ekki) stefáni mána sem samdi níðljóðið um bókina mína og sendi í lesbók moggans. svo mun samúel lesa upp úr samnefndri bók mikaels torfasonar. en mikki er að halda því fram að hann sé skitsó eða eitthvað, ég veit það ekki. kannski ég ætti að sparka í sköflunginn á stefáni þegar hann er að lesa…já, kannski ég geri það. ætli gerður lesi kaflann um erp? vonum ekki…en hér er dagskráin fyrir kvöldið:
Steinar Bragi les úr bókinni Áhyggjudúkkur
Sigurbjörg Þrastardóttir les úr Sólar sögu
Andri Snær Magnason les úr LoveStar
Sigtryggur Magnason les úr bók sinni, Herjólfur er hættur að elska
Hljómsveitin Ske leikur órafmagnað.
Samúel les úr samnefndri bók Mikaels Torfasonar.
Betarokk les úr Vaknað í Brussel
Gerður Kristný les úr Ég veit þú kemur
Stefán Máni les úr Ísrael
Spilað verður á sjórekið píanó til heiðurs Guðrúnu Evu Mínervudóttur.
ég hef nú ekki farið á marga upplestra en endilega komið og kallið “þetta er ööömurlegt” eða “frábærrrrrt” þegar við erum að lesa. peppa þetta aðeins upp…ha……koma svo…..
Posted by Beta at 08:38 FH
desember 03, 2002
sigurjón tók nú ekki á
sigurjón tók nú ekki á málunum eins og flestir bjuggust við. hann samdi lag um lítinn bumbudverg (mig) sem vildi fara á ball hjá bó hall en komst ekki inn þannig að krummi reddaði málunum. svo varð bumbudvergur frægur og fékk að koma í útvarpið. jibbíjí. jibbíjæ. en svo hrækir bumbudvergur á höndina sem fæðir hann. mjór, langur ístrubelgur, bumbudvergur særir hann.
doktorinn skammaði mig fyrir að minnast á útlitið á sigurjóni í þessum níðprósa hjá mér og var ég að spá í að sjá eftir því en eftir lagið um bumbudverg sé ég að þetta átti bara vel heima í umræðunni.
en mikið eru níðprósar vinsælir…hefði samt viljað fá eitthvað betra en lag frá sigurjóni…
Posted by Beta at 10:51 FH
hehehhe….pissið fær aldrei réttan lit
hehehhe….pissið fær aldrei réttan lit á jólatrénu og hatar fatlað fólk sem leggur í stæði fyrir venjulega….
Posted by Beta at 12:02 FH
desember 02, 2002
já, það fór sem fór.
já, það fór sem fór.
um leið og ég byrja að setja út á “skapara minn” verður allt tjúll. 3500 heimsóknir og 58 komment. að vísu á ég nokkur komment og sagði alls konar fólki að fokka sér og mér leið bara vel við það enda búin að vera mjög vondur dagur. ekki vegna þessa nóta bene… menn eins og kári jónasson hafa ekki áhrif á mig. það er bara hollt af hafa fólk sem líkar ekki við mann og ég er barasta orðin vön því.
en ég er forvitin að vita hvort sigurjón á eftir að tala um þetta. er hann eins harðnaður og hann virðist eða á hann eftir að taka þetta inn á sig? að sjálfsögðu erum við sigurjón hinir mestu mátar ég er honum þakklát fyrir að hleypa mér á öldur ljósvakans þar sem ég sagði meiri bullsögur en það sem stendur hér. mér finnst alveg ótrúlegt að menn eins og kári haldi að ég hafi sofið hjá þessum “verkefnum” mínum þegar ég vann sem rannsóknardrusla tvíhöfða. en ég er að spá í þessum allra hörðustu og hvernig þeir tala…kannski er það estrógenið í mér en það myndi að ég held ekki gefa mér fullnægju að enda rifrildi eða níð á “hengdu þig”. það er ekki góður stíll…
en hvort sigurjón eigi eftir að afneita mér sem vinkonu verður vandi um að spá. þetta er náttúrlega bara allt grín…
Posted by Beta at 11:50 EH
talandi um niðurlægingartímabil í menningu
talandi um niðurlægingartímabil í menningu og fjölmiðlum.
sigurjón kjartansson og co. margir eru búnir að halda því fram lengi að þátturinn sé dauður en þátturinn í dag var vægast sagt ný vídd í ömurlegheitum og ég sá ljósið….eða myrkrið öllu heldur. í fyrsta lagi er sigurjón svo illa af guði gerður að hann þrífst á því ömurlega. hann þolir ekki þegar fólk er að tala vel um annað fólk og meikar ekki neitt nema það sé eitthvað mikið diss í gangi. sem er náttúrulega glatað fyrir grínista að vera fastur í einu fari, fari sem hætti að vera fyndið fyrir þremur árum. í dag var mér hugsaði til tvíhöfða og þar hló maður upphátt allavega einu sinni á dag en það var náttúrulega einungis vegna jóns sem pælir mikið í lífinu og sagði sögur af sjálfum sér. sigurjón pælir ekkert, ekki séns að hann segi frá sjálfum sér nema hann sé að tala um ham eða fóstbræður, heldur leitar bara að dissi hér og þar. maður hefur ekki hlegið upphátt….ekki einu sinni fengið brosviprur í mjög langan tíma.
sigurjóni finnst til dæmis voðalega gaman þegar við erpur erum að bífast en í sjálfu sér er það bara ekki rassgat fyndið. áhugavert fyrir þá sem þekkja okkur kannski, en ekki fyndið. svo er hann með leiðinlegasta hljóðmann sem sögur fara af. þráinn er þunga týpan sem heldur að hann sé kúl, kallar konuna sína kellingu því það er svo töff og kippir undan fólki stólum þegar hann er fullur milli þess sem hann dettur á annað fólk á dansgólfinu. stundum missir hann sig í loftinu og segir eitthvað og ef hann er svo óheppinn að sigurjón spyr hann út í kommentið getur hann ekki sagt rassgat nema “bara!” getur aldrei útskýrt neitt því hann er alltaf að reyna að vera kúl en er það bara alls ekki. kannski gerir hann sér grein fyrir því innst inni og hefur vit á að þegja.”uuuh….liverpool er bara betri”. fífl.
samt örlaði á smá ferskleika um daginn þegar þessi matti eða maggi kom og tæknaðist. hann er allavega með sexí rödd…. en nei, þráinn kom aftur. ég hef hlustað með öðru eyranu lengi en fékk alveg nóg í morgun þegar sigurjón var með einhverja leiðinlega getraun og eitthvað fífl var í stúdíóinu að skellihlægja. sigurjóni finnst hann ógurlega fyndinn og heldur að okkur hinum finnist það líka en eins og hann segir þá er þetta niðurlægingartímabil fjölmiðlanna, mjór maður með bumbu og flösu sem var einu sinni fyndinn fær að vera endalaust í loftinu….hvenær er komið nóg?
ég ætla ekki einu sinni að byrja á að tala um íþróttafíflið….
en hei, strákar. ekki vera sárir. ég er bara að grínast!
Posted by Beta at 10:35 FH
er að krúsa niður minningarveginn
er að krúsa niður minningarveginn með pissinu.
ég hataði hann þegar við vorum saman í ms. þoldi hann ekki. en svo í miðju endurtektarprófi rann upp fyrir mér að hann er fyndnastur í heimi…hann er bestur þegar hann heldur að enginn sé að horfa en er misskilinn af mörgum. sem er ekki gott.
en ég er búin að fattann og við erum vinir í dag :)
Posted by Beta at 01:08 FH
desember 01, 2002
ég held að það séu
ég held að það séu furðulegir hlutir að gerast í kommentakerfinu mínu. annað hvort eru lesendur mínir frekar skitsó, mjög kaldhæðnir eða eru einfaldlega að skipta á milli sín nöfnum. siggi sýra sveiflast náttúrlega á milli þess að elska mig og hata en núna virðast mjög margir farnir að skitsóast svona. eru þetta prófin?
og mér finnst gestabókin einkennast af fólki sem skrifar til þess eins að geta bent á síðuna sína…
og vá hvað mörg blogg eru leiðinleg…hvað ertu að gera hérna???
Posted by Beta at 05:07 EH
úff….fór að damnsa…hitti herra íslanxd
úff….fór að damnsa…hitti herra íslanxd og hann skammaði mig fyrir seinasta blogg….fokk ðat. en svo voru allir alveg æðislega sætir vimmig….ég elska fólk….nema bent því hann skallar…ándjóks…….og skilur eftir skilabroð…án djósk……..
Posted by Beta at 06:27 FH